Efni
Samskólarnir
Þelamerkurskóli er í skólasamstarfi sem nefnt er SAM-skólarnir.
SAM-skólarnir eru auk Þelamerkurskóla, Valsárskóli, Grenivíkurskóli og Stórutjarnarskóli. Samstarf þetta hefur einkum falist í hinum svokölluðu SAM-skólaböllum, en það eru dansleikir fyrir nemendur 7. – 10. bekkjar í viðkomandi skólum.
Einnig hafa verið haldnir sameiginlegir íþróttadagar fyrir eldri nemendur. Þar hefur nemendum skólanna verið blandað í lið til keppni, í stað þess að skólarnir keppi hver við annan. Tilgangur þessa er sá að efla með nemendum samkennd og kunningsskap, í stað þess að ala á sundurlyndi og samkeppni.
Auk þess hafa kennarar skólanna fundað nokkuð reglulega þar sem þeir hafa miðlað reynslu og þekkingu hver til annars og hefur það m.a. orðið til þess að tengja skólana nánar saman. Í upphafi skólaárs standa skólarnir fyrir sameiginlegu námskeiði fyrir starfsfólk
Símanúmer SAM-skólanna eru:
Grenivíkurskóli s-464 3119
Stórutjarnarskóli s-464 3221 / 464 3220
Valsárskóli s-462 1772
Nokkrið viðburðir á vegum SAM-skólanna eru skipulagðir í vetur.
Fyrra SAM-skólaballið verður haldið á Grenivík föstudaginn 6. nóvember. Seinna SAM-skólaball verður síðan haldið í Valsárskóla föstudaginn 16. apríl.Eins og undanfarin ár verða íþróttadagar SAM-skólanna í vetur. Fyrsta mótið verður haldið í Grenivíkurskóla þriðjudaginn 13. október. Þar koma saman nemendur í 5. og 6. bekkjum SAM-skólanna. Næsti íþróttaviðburður verður síðan hjá 7. – 10. bekk föstuudaginn 12. feb. í Þelamerkurskóla.SAM-skólaviðburðir eru eingöngu ætlaðir nemendum SAM-skólanna.