Efni
Hefðir og venjur
Skólasetning: Stefnt er að því að skólasetning sé á útiskólasvæði skólans ef veður leyfir. Fyrst hitta nemendur umsjónarkennara sína sem lætur þau fá stundatöflur og innkaupalista og síðan er safnast saman í Mörkinni, útikennslusvæði skólans of þar er skólinn formlega settur. Kveiktur er eldur og bakað brauð.
Sláturdagur: Á sláturdegi er skólanum skipt upp í vinahópa og allir taka þátt í því að taka slátur. Nemendur búa til bæði blóðmör og lifrapylsu.
SAM-skólasamstarf: SAM-skólaböll eru tvö á skólaárinu og íþróttakeppnir milli SAM-skólanna eru a.m.k. ein fyrir hvert stig. Samskólarnir er samstarf nokkurra fámennra skóla, Þelamerkurskóla, Valsárskóla, Grenivíkurskóla og Stórutjarnaskóla.
Ferð í skólabúðirnar á Reykjum: Skólabúðirnar í Reykjaskóla tóku til starfa haustið 1988 og hafa starfað óslitið síðan. Nemendum grunnskóla víðsvegar að af landinu gefst kostur á að dvelja í skólabúðunum, vikutíma í senn við nám, leik og störf. Árlega koma á bilinu 2800-3000 börn í skólabúðirnar og miðast starfstíminn að mestu við skólaár grunnskóla landsins. Þelamerkurskóli er einn þeirra skóla sem nýtir sér Skólabúðirnar að Reykjum í Hrútafirði. Annað hvert ár fara nemendur 6. og 7. bekkjar í skólabúðirnar ásamt umsjónarkennara. Skipting kostnaðar milli heimila og skóla er samkvæmt áliti Menntamálaráðuneytisins frá 14. október 2010, en þar kemur fram að ekki er hægt að krefja foreldra um annan kostnað en uppihald á vettvangsferðum á skólatíma.
Dagur íslenskrar tungu: Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur í skólanum til á fæðingardegi okkar ástsæla skálds frá Hrauni í Öxnadal Jónasar Hallgrímssonar. Undanfarin ár hafa nemendur undirbúið sýningu sem sett er upp Jónasarlaug, hér á Laugalandi. Í ár er stefnt að því að bjóða uppá tónlistardagskrá á sal skólans með þátttöku hljómsveitar skólans, nemenda sem eru að læra á hljóðfæri ogg Skólakórsins. Ár hvert hefst undirbúningur fyrir Stóru upplestrarkeppnina á degi íslenskrar tungu.
Jólaföndur skólans: Í fyrsta skipti í fyrravetur var mörkuð sú stefna að vera með jólaföndur skólans eftir hádegi einhvern föstudag í byrjun desember. Dagurinn er undirbúinn af foreldrafélaginu og kennurum skólans. Föstudaginn 2. desember kl. 14:30-17:00 verður föndrað fyrir jólin í Þelamerkurskóla. Þá geta foreldrar og aðrir velunnarar skólans komið þangað og föndrað með nemendum ásamt því að geta keypt kakó með rjóma, smákökur og vöfflur. Allur ágóði af veitingasölunni verður nýttur til uppbyggingar á félagsaðstöðu nemenda. Föndurefni verður selt á hóflegu verði.
Í upphafi jólaföndursmverunnar stjórnar Sigga tónlistarkennari söng í stofu 3. Þá geta þeir sem það vilja safnast þar saman og sungið jólalögin. Heimakstur nemenda verður kl. 17:00 þennan dag.
Laufabrauðsdagurinn: Á þessum degi búa nemendur til laufabrauð sem borðað er á litlu-jólunum og þorrablótinu. Þessi dagur er skólavinadagur.
Skreytingardagur: Á þessum degi eru stofur og gangar skreyttir fyrir litlu-jólin.
Jólaljósadagurinn: Jólaljósadagurinn er haldinn í desember þegar vel viðrar. Þá er farið með útikerti upp í Álfaborg sem eru klettar í skógræktinni fyrir ofan skólann. Lagt er af stað kl. 8.30 og þegar nemendur koma til baka er boðið upp á kakó og kringlu. Jólaljósadagurinn er skólavinadagur.
Litlu jólin: Síðasta kennsludag fyrir jól heldur hver bekkur sín stofujól. Eftir kirkjuferð og stofujól er borðaður hátíðarmatur í borðsalnum og síðan dansað kringum jólatré.
Dagskrá þessa dags er með föstu sniði. Kirkjuferðin og jólaballið er með skólavinum.
Upplestrarhátíð skólans: Það er venja að hefjaundirbúning fyrir Stóru upplestrarkeppninni á Degi íslenskrar tungu. Þelamerkurskóli heldur lestrarhátíð til þess að velja fulltrúa skólans í stóru lestrarkeppninni. Þar lesa nemendur tvisvar sinnum upp fyrir áheyrendur. Fyrst samfelldan texta og síðan ljóð að eigin vali. Boðið er upp á tónlistaratriði. Í dómnefnd eru fulltrúar frá kennurum skólans, fulltrúar frá leikfélagi Hörgdæla og fulltrúi frá foreldrafélgi skólans.
Sprengidagur: Á sprengidaginn er öskudagsball í skólanum fyrir alla nemendur skólans. Ballið hefst klukkan 13:15 og stendur til kl. 14:45. Eftir ballið er nemendum ekið heim í skólabílum. Við sláum köttinn úr tunnunni og tunnukóngur/drottning verður krýnd/ur með viðhöfn. Það verður söngvakeppni öskudagsliða, marsering, diskótek og fleira skemmtilegt. Allir sem mæta í búningum fá verðlaun. Til að gera meira úr þessum skemmtilega degi mæta allir í búningum í skólann um morguninn en ómáluð í framan. Þeir nemendur sem þurfa andlitsmálingu fá aðstoð við það fyrir öskudagsballið Sjálfan öskudaginn er starfsdagur hjá kennurum.
Góugleði í Þelamerkurskóla: Í upphafi góu er haldin góugleði. Umsjón með gleðinni er í höndum 9. bekkjar. Á skemmtunina er boðið starfsfólki skólans og mökum þeirra, nemendum í 7. – 10. bekk, foreldrum 9. og 10. bekkinga og bílstjórum og mökum þeirra.
Þorrablót 1. – 6. bekkjar byrjar strax að loknum löngu frímínútum, kl. 11:00. Umsjón og skipulagning þess er að mestu í höndum 6. bekkjar. Á meðan þorramaturinn rennur ljúflega niður standa nemendur fyrir hinum ýmsu skemmtiatriðum, má þar nefna spurningakeppni, brandara, gátur og tónlistaratriði. Varslav spilar undir á harmonikku.
Árshátíðin: Árshátíðin er haldinn í vikunni fyrir páskafrí. Árshátíðarvikan.
Útivistardagar er tvisvar á skólaárinu. Fyrir áramót er farið á skauta og eftir áramót er farið á skíði. Veðrið er látið ráða hvenær skíðadagurinn er haldinn en skautadagurinn er yfirleitt í byrjun nóvember.
Síðasti kennsludagur: Í stað hefðbundins hádegisverðar er grillað. Hluti dagskrárinnar verður í sundlauginni, svo börnin þurfa að koma með sundföt með sér og einnig skjólgóðan fatnað.
Skólaslit: Skólaslit skólans eru haldin í Hlíðarbæ. Það er ekki skólaakstur á skólaslitin.
Skólaslit Þelamerkurskóla skólaárið 2011-2012 verða fimmtudaginn 31. maí.
