Ţelamerkurskóli í Hörgársveit

http://www.thelamork.is/

Ţelamerkurskóli er heildstćđur grunnskóli ađ Laugalandi í Hörgárdal. Nemendur skólans koma úr Arnarneshreppi og Hörgárbyggđ og á skólaárinu 2008-2009 eru nemendur 94. Skólinn leggur áherslu á útiveru og hreyfingu. Útiskóli hefur veriđ starfrćktur viđ skólann í átta ár og einnig eru í stundaskrám Ţelamerkurskóla fleiri hreyfistundir en viđmiđunarstundaskrá gerir ráđ fyrir.

Efni

Skólahjúkrun

 

Hlutverk heilsugæslu í skólum               Netfang: gh.is

Hlutverk heilsugæslu í skólum er að sinna heilsuvernd nemenda. Þetta er gert með reglubundnum skimunum og eftirliti, fræðslu og teymisvinnu kringum einstaka mál.

Heilsugæsla í skólum er framhald ung- og smábarnaverndar. Starfsemi skólaheilsugæslu er skv. lögum, reglugerðum og tilmælum er um hana gilda. Hún er meðal annars fólgin í reglulegum heilsufarsathugunum, ónæmisaðgerðum, heilbrigðisfræðslu og ráðgjöf til nemenda, foreldra og starfsfólks skólans. Hver skóli hefur skólahjúkrunarfræðing og skólalækni jafnframt því sem hvert barn hefur sinn heimilislækni. Heilsugæslu í grunnskólum Akureyrar er sinnt af  hjúkrunarfræðingum og læknum frá Heilsugæslustöðinni á Akureyri.

Hjúkrunarfræðingur Þelamerkurskóla er  Elisabeth J. Zitterbart og skólalæknir er Jón Torfi Halldorsson.

Netfang Elisabethar er skolahjukrun@thelamork.is.

Skólahjúkrunarfræðingurinn verður við á miðvíkudögum. Markmiðið með heilsugæslu í skólum er að stuðla að því að börn fái að þroskast við þau bestu andlegu og líkamlegu skilyrði sem völ er á. Til þess að vinna að markmiði þessu er fylgst með börnunum svo að frávik finnist og viðeigandi ráðstafanir verði gerðar sem fyrst. Áherslan er lögð á að fyrst og fremst beri foreldrar ábyrgð á heilsu og þroska barna sinna, en starfslið heilsugæslu í skólum fræði, hvetji og styðji foreldra í hlutverki sínu. Á heimasíðu Miðstöðvar heilsuverndar barna http://www.heilsugaeslan.is má finna nánari upplýsingar um heilsugæslu í skólum og ráðleggingar til foreldra um heilbrigðistengd málefni.

Skipulögð heilbrigðisfræðsla og hvatning til heilbrigðra lífshátta verður unnin eftir því sem unnt er. Byggt er á hugmyndafræðinni um 6-H heilsunnar sem er samstarfsverkefni skólaheilsugæslunnar og Lýðheilsustöðvar. Eftir fræðslu fær barnið fréttabréf með sér heim. Þá gefst foreldrum kostur á að ræða við bönunum það sem þau lærðu og hvernig þau geti nýtt sér það í daglegu lífi. 

 

Slys og óhöpp á skólatíma

 

Það er ekki hlutverk skólahjúkrunarfræðings að vera með slysamóttöku í skólanum. Skólahjúkrunarfræðingur veitir fyrstu hjálp þegar alvarlegri slys verða í skólanum og er starfsfólki skólans til stuðnings og ráðgjafar þegar upp koma veikindi og slys hjá nemendum, á þeim tíma sem hjúkrunarfræðingur er við störf.Ef smáslys eða óhapp verður á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp. Þurfi nemandi að fara á heilsugæslustöð eða slysadeild skulu foreldrar/forráðamenn fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í foreldra á skólatíma barnsins.
Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af skólaheilsugæslunni. Foreldrum er bent á að snúa sér til heimilslæknis og Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri með heilsufarsmál sem ekki teljast til skólaheilsugæslu.
Foreldrar/forráðamenn bera ábyrgð á líðan og heilbrigði barna sinna.  Góð samvinna og gott upplýsingaflæði er mikilvægt til að starfsfólk skólaheilsugæslu geti sinnt starfi sínu sem best.  Því eru foreldrar hvattir til að hafa samband við hjúkrunarfræðing skólans ef einhverjar breytingar verða hjá barninu sem gætu haft áhrif á andlegt, líkamlegt eða félagslegt heilbrigði þess.  Að sjálfsögðu er fyllsta trúnaðar gætt um mál einstakra nemenda.Vilji foreldrar/forráðamenn fá upplýsingar um einstök atriði, hvað varðar heilsugæsluna er þeim velkomið að hafa samband við hjúkrunarfræðinginn. 

Lyfjagjafir í skólum

 

Í tilmælum frá landlækni um lyfjagjafir í grunnskólum frá maí 1999 kemur meðal annars fram að foreldrum/forráðamönnum ber að afhenda hjúkrunarfræðingum þau lyf sem börn/unglingar eigi að fá í skólanum og að börn/unglingar skuli aldrei vera sendiboðar með lyf.  Sjá nánari upplýsingar á http://www.landlaeknir.is.

Foreldrar /forráðamenn þeirra barna/unglinga sem þurfa að taka lyf á skólatíma eru vinsamlega beðnir að hafa samband við hjúkrunarfræðinga skólans til skrafs og ráðagerða um hvernig best verði komið til móts við þessi tilmæli. 

 

Lús

 

Við viljum minna fólk á að skoða reglulega hár barna sinna og láta skólahjúkrunarfræðing vita ef lús finnst.  Við verðum að standa saman og gera viðeigandi ráðstafanir til að hefta útbreiðslu þessa aðskotadýrs.Nánari upplýsingar um lúsina er að finna á http://www.heilsugaeslan.is og http://www.landlaeknir.is

Veturinn 2010 - 2011 er áætlað að eftirlit og umsjón með nemendum og ónæmisaðgerðir verða framkvæmdar samkvæmt eftirfarandi yfirliti:  

 

1. bekkur:  Hæð, þyngd, sjón, heyrn.
 4.bekkur:  Hæð, þyngd, sjón, og litaskyn. Einnig læknisskoðun. 
7. bekkur: Hæð, þyngd, sjón, bólusett gegn mislingum, rauðum hundum og hettusótt (ein sprauta) 
9. bekkur: Hæð, þyngd, sjón, heyrn, Bþ mældur, læknisskoðun.  Bólusett gegn mænusótt, barnaveiki og stífkrampa (ein sprauta)

 

Nemendur úr öðrum árgöngum eru skoðaðir ef ástæða þykir til. Vilji foreldrar / forráðamenn fá upplýsingar um einstök atriði, hvað varðar heilsugæsluna er þeim velkomið að hafa samband við hjúkrunarfræðinginn.  Nemendur verða kallaðir í eftirlit, hver hjá sínum tannlœkni. Rannsóknir staðfesta mikilvægi flúorskolunnar til varnar tannskemmdum, þar sem flúor styrkir glerung tanna og vinnur þannig gegn tannátu.Stefnt er að því að bjóða upp á flúorskolun í 1., 7. og 10 b. í u.þ.b. 12 skipti yfir veturinn. Þegar samkennt er í sömu stofunni þegar flúorskoluninn fer fram er öllum nemendum boðið upp á það þiggja flúor.

Ef foreldrar/forráðamenn vilja ekki að börn þeirra taki þátt í einhverju af því sem upp er talið hér. eru þeir beðnir um að hafa samband við hjúkrunarfræðin sem fvrst. Ef ekkert heyrist frá foreldrum verður það skoðað sem samþykki.  

Við viljum benda foreldrum/forráðamönnum barna á mikilvægi þess að þau fái nægan svefn, hvíld og neyti morgunverðar. Skorti þetta fá þau ekki notið þeirrar kennslu og þess starfs sem fram fer í skólanum. Svengd og skortur á svefni og hvíld leiða til þreytu. Börnin þola ekki langa setu og hætt er víð að námsefnið fari fyrir ofan garð og neðan.

Hæfílegur svefntími er talinn vera:

5 - 8 ára börn u.þ.b. 10 - 12 klst. á sólahring

9 - 12 ára böra u.þ.b. 10 - 11 klst. á sólahring

13 - 15 ára börn u.þ.b. 9 - 11 klst. á sólahring

Upp aftur

Vinstri hliđ

Leturstćrđir

Upp aftur

Upplýsingar

Heimilisfang: Laugalandi, 601 Akureyri

Kennitala sveitarfélags: 510101-3830

Símanúmer:

Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda:

460-1773 

Skólastjóri 460-1770
Aðst.skólastj. 460-1774
Kennarastofa 460-1772

Símanúmer bílstjóra

Viðbragðsáætlun vegna óveðurs eða ófærðar

Heimasíða Hörgársveitar

Heimasíða Tónlistarskóla Eyjafjarðar

Senda póst

Upp aftur