Efni
Skólinn
Þelamerkurskóli er grunnskóli fyrir 1. - 10. bekk og er staðsettur að Laugalandi í Hörgárbyggð. Nemendur skólans koma úr Hörgársveit og á skólaárinu 2010-2011 eru nemendur 89. Skólinn telst meðal fámennra skóla og miðast samkennsla árganga við fimm námshópa.
Skólinn er vel í sveit settur þegar litið er til staðsetningar og aðbúnaðar. Í því sambandi má nefna aðstöðu til íþróttaiðkunar og útivistar. Í gegnum tíðina hefur hvoru tveggja verið nýtt til að móta sérstöðu skólans; útiskólann, HHH-verkefnið (hollusta, hreyfing, hreysti). Skólinn flaggaði grænfánanum síðasta vor.
Uppbygging stundatöflu er á þann veg að kennsla hefst kl. 8:30 og þá er kennt í eina kennslustund. Frá kl. 9:10 - 9:30 er morgunverður og frímínútur. Nemendur þurfa ekki að fara út í þessum frímínútum. Síðan er kennt frá 9:30 til 10:10 og frá kl. 10:10 til 10:50. Þá er útivist allra nemenda í tuttugu mínútur. Kennsla hefst síðan aftur kl. 11:10 og er kennt í tveimur lotum til kl. 12:30, þá er hádegisverður hjá öllum. Hádegishléi lýkur síðan kl. 13:00 og kennsla hefst að nýju. Þá er kennt í tveimur lotum til kl. 14:20. Kennslu lýkur kl. 14:20 alla daga. Í vetur erum við að gera tilraun með það að láta nemendur 1. - 6. bekkjar mæta fyrr í morgunmat og hádegismat. Þetta er gert til þess að reyna að minnka hávaða í matsalnum og skapa meiri ró í kringum matmálstíma barnanna.
Stundaskrá skólans tekur mið af viðmiðunarstundaskrá en auk þess er tímum bætt við í samræmi við séráherslur skólans. Séráherslur skólans eru aðallega tvær. Það er HHH-verkefnið sem hefur það að markmiði að auka hreyfingu hjá nemendum skólans og stefna að því að bjóða uppá hollan mat í mötuneytinu. Síðari séráhersla skólans er útiskólinn. Útiskólinn er fyrir nemendur í 1. - 4. bekk. Yngri nemendur eru við nám úti fyrir hádegi alla miðvikudaga.