Efni
Kór og söngur á sal
Skólakór Þelamerkurskóla
Frá haustinu 2010 hefur verið starfræktur kór við skólann. Hann æfir einu sinni í viku og er æfingin í stundaskrá nemenda 1.-6. bekkjar. Þátttaka nemenda í kórnum er almenn og syngur stór hluti nemenda þessara árganga. Frá upphafi hefur það vakið athygli hve margir drengir syngja með kórnum.
Söngur á sal
Einu sinni í viku koma nemendur 1.-6. bekkjar saman í tónmenntastofu skólans með tónmenntakennara og skólastjóra. Þar syngja þau saman og stundum er dansað. Einnig fá nemendur þarna tækifæri til að stíga á svið og sýna samnemendum sínum leikrit, dans eða annað sem þeir hafa æft eða unnið að.
Söng á sal er ætlað að efla söng í skólanum, samkennd nemenda og að gefa þeim tækifæri til að koma fram með atriði sem þeir vilja sýna öðrum.

