Efni
Stundaskrár
Uppbygging stundatöflu er á þann veg að kennsla hefst kl. 8:30 og þá er kennt í eina kennslustund. Frá kl. 9:10 - 9:30 er morgunverður og frímínútur. Nemendur þurfa ekki að fara út í þessum frímínútum. Síðan er kennt frá 9:30 til 10:10 og frá kl. 10:10 til 10:50. Þá er útivist allra nemenda í tuttugu mínútur. Kennsla hefst síðan aftur kl. 11:10 og er kennt í tveimur lotum til kl. 12:30, þá er hádegisverður hjá öllum. Hádegishléi lýkur síðan kl. 13:00 og kennsla hefst að nýju. Þá er kennt í tveimur lotum til kl. 14:20. Kennslu lýkur kl. 14:20 alla daga.