Efni
Sérstaða
Þelamerkurskóli hefur á undanförnum árum valið að nýta sér nánasta umhverfi sitt til að skapa sérstöðu sína. Þar er nærtækast að nefna verkefnið Heilsa, hreyfing, hollusta . En í því verkefni er aðstaðan í Íþróttamiðstöðinni að Þelamörk nýtt í samvinnu við Ungmennafélagið Smárann. Í nánasta umhverfi skólans er einnig skógur sem nýttur er í starfsemi Útiskólans .
Lífsleiknin sem kennd er í Þelamerkurskóla samanstendur af námsefninu Vinum Zippýs, Stig af stigi, bekkjarfundum og verkefni sem kallað er Ég sem er starfrækt einu sinni í viku í þrjá tíma í senn hjá nemendum 9. og 10. bekkjar.
Í Þelamerkurskóla er einnig litið svo á að fjölbreytni í starfsmannahópi sé eitt af einkennum hans. Þar á meðal má nefna að hann er einn af fáum grunnskólum þar sem starfar iðjuþjálfi í fullu starfi.