Ţelamerkurskóli í Hörgárbyggđ

http://www.thelamork.is/

Ţelamerkurskóli er heildstćđur grunnskóli ađ Laugalandi í Hörgárdal. Nemendur skólans koma úr Arnarneshreppi og Hörgárbyggđ og á skólaárinu 2008-2009 eru nemendur 94. Skólinn leggur áherslu á útiveru og hreyfingu. Útiskóli hefur veriđ starfrćktur viđ skólann í átta ár og einnig eru í stundaskrám Ţelamerkurskóla fleiri hreyfistundir en viđmiđunarstundaskrá gerir ráđ fyrir.

Efni

Tónlistarskóli Eyjafjarðar

Í Tónlistarskóla Eyjafjarðar er boðið upp á kennslu á flest þau hefðbundnu hljóðfæri sem þekkjast.Undanfarin ár hefur verið forskóli í 1. til 4. bekk.  Fyrsti til þriðji bekkur læra á blokkflautur þar sem kennd er undirstöðuatriði hljóðfæranáms, en fjórða bekk er kennt í litlum hópum á hljóðfæri sem börnin hafa valið sér.Reynt er að tengja tónleikahald starfsemi grunnskólanna og er reiknað með að hver nemandi komi fram minnst tvisvar á hverjum vetri. Auk þess sem tekið er þátt í athöfnum í kirkjum á svæðinu auk margs annars.Kennslan miðast við að nemendur temji sér sjálfstæð vinnubrögð og námsefnið þannig valið, að hver og einn geti leikið sjálfum sér og öðrum til ánægju og þroski jafnframt hæfileika sína og víkki sjóndeildarhringinn. Þeir kennarar frá Tónlistarskólanum sem kenna í Þelamerkurskóla í vetur eru: María Gunnarsdóttir forskólakennari, Indrek Pajus gítarkennari, Marcin Lazarz fiðlukennari, Ingvi Vaclav Alfreðsson harmónikkukennari, Þórarinn Stefánsson píanókennari og Þuríður Baldursdóttir söngkennari.  Skólastjóri er Eiríkur G. Stephensen.Sími skólans er 464 8110 og farsími skólastjóra er 898 6571. Heimasíða skólans er http.//www.krummi.is/tonlistarskoli og netfangið te@krummi.is

Símatími skólastjóra er á miðvikudögum milli kl. 11:00 – 12:00.

Upp aftur