Efni
Ungmennafélagið Smárinn
Ungmennafélagið Smárinn er drífandi félag sem er með ýmsa starfsemi á skólasvæði Þelamerkurskóla. Félagið hefur stutt vel við skólann á liðnum árum og þökkum við kærlega fyrir það. Smárinn er með eftirfarandi æfingatíma í vetur.
Frjálsar íþróttir:
Þriðjudaga og fimmtudaga frá skólalokum til kl. 16:00. Þjálfari Ari Heiðmann Jósavinsson
Fótbolti:
Mánudaga og miðvikudaga frá skólalokum til kl. 16:00. Þjálfari Arnór Heiðmann Aðalsteinsson.
Æfingar á mánudögum og þriðjudögum eru fyrir allan aldur en lögð áhersla á æfingar fyrir yngri börnin. Miðvikudags- og fimmtudagsæfingarnar eru eingöngu fyrir 5.-10. bekkinga.
Foreldrar eru beðnir um að láta skólabílstjóra vita ef börn þeirra fara á æfingar og því ekki heim með skólabílnum.
