Efni
Útiskóli
Í Þelamerkurskóla hefur útikennsla verið fyrir 1. - 4. bekk í átta ár.
Útikennsla er nám sem að mestu leyti fer fram utan hefðbundinnar skólastofu. Aðalmarkmið þessara kennslustunda er að gera nemendur læsa á umhverfi sitt, gefa nemendum tækifæri til að læra að bera virðingu fyrir náttúrunni og auka tengsl þeirra við umhverfið. Einnig að vekja nemendur til umhugsunar um möguleikana sem finnast í nánasta umhverfi þeirra.
Útikennslan fer fram fyrir hádegi alla miðvikudaga. Í henni fara nemendur í margs konar umhverfisvinnu. Eftir hádegi skrifa nemendur dagbók þar sem fjallað er um það sem gert var um morguninn.
Í lok vorannar 2006 var ákveðið að nýta svæðið norðan Laugalands fyrir útiskólann. Skólaárin 2006-2007 og 2007-2008 var nemendum í 9. - 10. bekk boðið upp á val í útikennslu. Tilgangur þessa hóps var að vinna það verkefni að útbúa útikennslustofu fyrir skólann í skóginum norðan Laugalands. Fyrst var vinnan að grisja svæðið og gera það aðgengilegt. En á vorönn 2008 hófust nemendur 9. og 10. bekkjar handa við að undirbúa svæðið fyrir útinám. Þá voru byggð þar leiktæki, borð, eldstæði, kotra og svæðið var ræst fram til að þurrka það. Hér er hægt að skoða myndir frá þeirri vinnu. Og hérna eru myndir frá útikennslusvæðinu og hér eru enn fleiri myndir frá þessum dögum.
Útiskólinn er farinn að segja víðar til sín í skólastarfinu því í smiðjum á haustönn 2008 er boðið uppá smiðjuna útieldamennska. Það er heimilisfræðikennari skólans, Inga S. Matthíasdóttir sem sér um þá smiðju. Hér eru myndir frá fyrsta smiðjuhópnum sem fór í útieldamennsku hjá Ingu í ágúst 2008.
Stýrihópur útiskólans tók saman skýrslu um útinám í Þelamerkurskóla á síðasta skólaári. Skýrsluna getur þú sérð hérna.
Stýrihóp þessa verkefnis skólans skipa Hulda Arnsteinsdóttir, Jónína Sverrisdóttir og Unnar Eiríksson