    <language>is</language>
Þelamerkurskóli
Útivistardagur 8. september 2026
Á útivistardegi skólans höfðu 5.-10. bekkingar val um fjórar ferðir; veiðiferð, fjallgöngu, gönguferð um Glerárdal og krossaraferð. Dágóður hópur nemenda reyndi fyrir sér við veiðar í Hörgá en það er nýjung að bjóða upp á veiðiferð á útivistardegi skólans. Nemendur, starfsfólk og nokkrir úr hópi foreldra gengu niður að ósum Hörgár ásamt þeim Helga Steinssyni og Guðmundi Víkingssyni sem veittu nemendum leiðsögn og aðstoð. Þrátt fyrir að ekkert hafi veiðst skemmtu nemendur sér við margvíslega iðju, svo sem sílaföngun, vaða í tjörnum og grynningum, ganga um svæðið og spjalla við vini sína og borða grillaðar pylsur við árbakkann. ]]></description>
Sólríkur og skemmtilegur útivistardagur í fjörunni
Nemendur í 1. til 4. bekk áttu dásamlegan útivistardag sl. þriðjudag. Ferðinni var heitið niður í Gáseyri þar sem leikur, fróðleikur og samvera réðu ríkjum. Nemendur nýttu tímann vel til að rannsaka umhverfið og fannst ævintýri að skoða lífríkið við sjóinn. Í fjöruborðinu leyndust ýmsir leyndardómar og fundu krakkarnir meðal annars litla fiska, marglyttur og krabba sem vöktu mikla kátínu. Þá var einnig safnað allskyns steinum og skeljum, þar á meðal fallegum bláskeljum.
Sigling á Húna II
Hollvinir Húna II buðu 5.-6. bekkingum í siglingu í mánudaginn 7. september. Ferðin er skipulögð í samstarfi við Háskólann á Akureyri og um borð fá nemendur að kynnast sjávarútvegi og fræðast um lífríki sjávar og sérkenni Eyjafjarðar.]]></description>
Auglýst er eftir matartækni eða matráði í afleysingu í mötuneytinu
Þelamerkurskóli auglýsir eftir matartækni eða matráði í 100% starf í afleysingu í mötuneyti skólans um óákveðin tíma.]]></description>
Unglingarnir snyrta skólaumhverfið
Í dag sýndu krakkarnir í 9. og 10. bekk frábært fordæmi. Þau fóru saman út í blíðuna og tíndu rusl í kringum skólalóðina okkar af miklum krafti. Sýndu þau góða samvinnu og er umhverfið okkar mun snyrtilegra en það var áður.]]></description>
Skólasetning færist inn
Sumarlokun
Starfsfólk Þelamerkurskóla er farið í sumarfrí. Skrifstofan opnar þriðjudaginn 4. ágúst. Skólasetning verður mánudaginn 24. ágúst kl. 14:00 á útiskólasvæðinu okkar á Mörkinni.]]></description>
Skólaslit 4. júní 2026
Skólaslit 1.-6. bekkjar fóru fram á sal skólans 5. júní. Við upphaf skólaslitanna flutti Agnes Emilía og Sunneva tónlistaratriði. Hver bekkur kom síðan upp og kvaddi kennarana sína. 10. bekkingar buðu verðandi fyrstu bekkinga velkomna í skólann og færðu þeim birkiplöntu og buff merkt Þelamerkurskóla.]]></description>
Vorhátíð 4. júní
Vorhátíð skólans var haldin á síðasta nemendadegi skólaársins, fimmtudaginn 4. júní. Þá eru foreldrar velkomnir í skólann og allir eiga góða stund saman. Eftir að nemendur höfðu hitt kennara sína í stofunum sínum og fengið sér morgunmat hófst dagskrá niðri í íþróttahúsi. Keppt var í boðhlaupi sem innihélt mismunandi þrautir. ]]></description>
Þelamerkurleikar 3. júní
Hinir árlegu Þelamerkurleikar voru haldnir sl. miðvikudag, 3. júní. Allur skólinn tekur þátt og fara bekkirnir saman á mismunandi stöðvar þar sem nemendur spreyta sig í hinum ýmsu greinum, ýmist einstaklingskeppni eða bekkurinn sem lið. 
Vorferð 5.-10. bekkjar miðvikudaginn 27. maí
Nemendur mið- og unglingastigs fóru í sína árlegu vorferð sl. miðvikudag. Ferðinni var heitið að Hólavatni og undu nemendur sér þar við leik í ágætu veðri.]]></description>
Vorferð 1.-4. bekkjar miðvikudaginn 27. maí
Hópurinn byrjaði á að heimsækja Hveravelli í Reykjahverfi þar sem nemendur fengu að skoða tómataplöntur í stóru gróðurhúsi og smakka nýja tómata, paprikur og gúrkur við mikla hrifningu. Því næst var ferðinni heitið til Húsavíkur á Hvalasafnið sem var mjög fróðlegt og
áhugavert.
Frétt frá læsisráði
Í Þelamerkurskóla er starfandi læsisráð. Fulltrúar nemenda í ráðinu eru: Arnór, Auður, Pétur, Sunneva, Míó og Efemía. Úr hópi kennara eru Bryndís, Gréta og Halla.
Ráðið hittist reglulega yfir veturinn og vinnur að alls konar skemmtilegum verkefnum tengdu læsi. Markmið með starfinu er að efla læsi og gefa nemendum tækifæri til að koma með hugmyndir að læsistengdum verkefnum og koma þeim í framkvæmd. ]]></description>
Hvalirnir mæta í skólann og á Húsavík
Mikil gleði ríkti í 3. og 4. bekk þegar spennandi hvalaþema stóð yfir hjá okkur. Nemendur unnu fjölbreytt verkefni í Byrjendalæsi þar sem þau lærðu um risa hafsins og efldu á sama tíma lestur, skrift og skilning á náttúrunni okkar. Lögð var áhersla á vinnu með fræðitexta og var bókin Hvalir í aðalhlutverki. Nemendur rýndu í myndir og texta til að dýpka þekkingu sína og kynntust börnin mörgum tegundum, allt frá hnísum til steypireyða.]]></description>
Umhverfisdagur 15. maí 2026
Í dag áttum við góðan dag í ljómandi góðu veðri þegar árlegur umhverfisdagur fór fram. Allir nemendur tóku þátt í fjölbreyttum og spennandi verkefnum á fjórum mismunandi stöðvum, bæði úti og inni. Hóparnir voru aldursblandaðir og skólavinir fylgdust að og hjálpuðust að við öll verk dagsins.]]></description>
Vorþytur er kominn út
Síðasta fréttabréf skólaársins, Vorþytur, er komið út. Vorþytur er stútfullur af skemmtilegum fréttum af okkar öfluga skólastarfi. Við hvetjum ykkur til þess að lesa hann. ]]></description>
Vegleg gjöf frá foreldrafélagi Þelamerkurskóla
Fulltrúar úr stjórn foreldrafélags Þelamerkurskóla komu í vikunni í heimsókn í skólann og færðu skólanum veglega gjöf. Þetta voru ýmis konar sumarleikföng eins og sippubönd, teygjutvist, húllahringir, boltar, krítar og margt fleira. Hópur nemenda úr 3.-4. bekk tók á móti gjöfinni fyrir hönd skólans og voru nemendur mjög spenntir að fara að nota allt þetta skemmtilega dót. Við færum foreldrafélaginu bestu þakkir fyrir gjöfina og vitum að hún mun nýtast nemendu skólans mjög vel. ]]></description>
Góð þátttaka í 1. maí hlaupi UFA
Fjölmennur hópur nemenda Þelamerkurskóla tók þátt í 1. maí hlaupi UFA en hefð hefur skapast fyrir því hjá mörgum að taka þátt í þessu hlaupi á ári hverju. Í ár var Þelamerkurskóli með bestu þátttökuna í flokki fjölmennra skóla en 28% nemenda skólans tóku þátt og fengu afhentan bikar.  Á myndinni má sjá nemendahópinn með bikarinn. Vel gert krakkar og til hamingju!]]></description>
Atvinna - laus staða
Við Þelamerkurskóla er laus staða kennara á yngsta stigi. Um er að ræða tímabundna 80% stöðu skólaárið 2026-2027. ]]></description>
Skólahreysti
Þelamerkurskóli átti flotta fulltrúa í Skólahreysti sem fram fór í Íþróttahöllinni á Akureyri fimmtudagskvöldið 30. apríl. Það voru þau Heiðar Aron og Ylva Sól sem tóku þátt í hraðabraut. Hector Leví gerði upphífingar og dýfur og og Tanja Björt tók þátt í armbeygjum og hanga.]]></description>