Fréttir

Öskudagsgleði í skólanum

Á sprengidaginn var venju samkvæmt haldin öskudagsgleði í skólanum. Nemendur og starfsfólk mættu í búningum, slógu köttinn úr tunnunni, tóku þátt í söngvakeppni og dönsuðu á grímuballi.
Lesa meira

Myndir frá skólastarfi

Í þessari frétt er að finna nokkrar myndir af daglegu starfi í skólanum síðustu vikur. Í myndaalbúminu má sjá útistærðfræði, áhugasviðsverkefni, kynningar, öskudagsheimsókn í sveitinni, Byrjendalæsisvinnu, samstarf unglinga og yngstu barna, kanínuheimsókn og Just dance hreyfivikugleði.
Lesa meira

Frábær útivistardagur í Hlíðarfjalli

Á miðvikudaginn var áttum við stórkostlegan útivistardag í Hlíðarfjalli þar sem allir nemendur og allt starfsfólk naut þess að dvelja í sól og logni, renna sér á skíðum, borða pylsur og njóta samveru. Nemendur þeyttust um brekkurnar eins og þau hefðu aldrei gert annað og allir virtust skemmta sér konunglega. Það var magnað að sjá yngsta hópinn vera kominn á fleygiferð í lyftubrekkurnar, flest alveg sjálfbjarga.
Lesa meira

Skíðaskóli 1.-4. bekkinga

Eftir alls kyns hindranir í að komast í skíðaskólann okkar góða sl. tvö ár, náðum við þremur dögum í ár, með smá tilfærslum! Það var hreint stórkostlegt að sjá nemendur eflast og styrkjast í skíðaiðkun sinni og sum þeirra sem stigu í fyrsta sinn á skíði á degi eitt, voru orðin örugg og sjálfbjarga strax á degi tvö. Magnað alveg!
Lesa meira

6. bekkingar buðu til þorrablóts

Þann 18. febrúar sl. buðu 6. bekkingar öllum sér yngri nemendum á þorrablót. Nemendur höfðu fyrr í vetur búið sjálfir til hluta af þorramatnum, s.s. slátur og sviðasultu og auk þess var boðið upp á hákarl, súrmat, hangikjöt og allt sem tilheyrir góðu þorrablóti. Flestir nemendur borðuðu vel og smökkuðu jafnvel nýjar afurðir! Nemendur 6. bekkjar stýrðu boðinu vel, Sigrún Magna og Margrét spiluðu undir fjöldasöng og að áti loknu, var boðið upp á skemmtiatriði í stofu 6. bekkinga. Frábær stund. Takk fyrir okkur 6. bekkingar.
Lesa meira

Skíðaskóli skv. áætlun í dag, þriðjudag!

Loksins komumst við í fjallið og allir eru spenntir. Á morgun stefnum við svo á stóra skíðadaginn og fáum vonandi jafn gott veður.
Lesa meira

Skíðaskóli fellur niður í dag, fimmtudag

Vegna veðurs fellur skíðaskólinn því miður niður í dag, fimmmtudag. Við stefnum ótrauð á næsta mánudag og þriðjudag í staðinn.
Lesa meira

Hlíðarfjall lokað í dag þriðjudag

Hlíðarfjall er lokað í dag þriðjudag vegna veðurs. Við reynum aftur við skíðaskólann á morgun.
Lesa meira

Skólahald fellur niður í dag, þriðjudag

Skólahald fellur niður í Þelamerkurskóla í dag. Eftir nóttina er víða ófært í sveitarfélaginu þótt verið sé að vinna að mokstri. Auk þess er mikil hálka og krapi. Nú í morgunsárið er veðrið ágætt, en er líða fer á mroguninn kemur sterkur suð-suðvestan hvellur með miklu roki frameftir degi og sumstaðar úrkomu. Samkvæmt veðurspá dagsins eru því allar líkur á að það verði ófært þegar komið er að heimferð úr skólanum, vegna roks, hálku og mögulega snjófyrirstöðu. Allt skólahald fellur því niður í dag.
Lesa meira

Myndir frá skólastarfi í janúar

Skólastarf janúarmánaðar einkenndist af alls kyns skapandi þemaverkefnum, vinnu við áhugasviðsverkefni, útiskóla, bóklegum tímum, myndbandaverkefni í ýmsum námsgreinum, læsisverkefnum í sundi og spennandi sköpun í valgreinum. Auk þess fengu 7.-10. bekkur Þorgrím Þráinsson í heimsókn með stórgott erindi um leiðir til að auka sjálfstraust sitt og stuðla að góðu lífi, Ragna íþrótta- og heimilisfræðikennari setti upp frábæra dagskrá í tannverndarvikunni, sem endaði á fyrirlestri um tannheilsu frá Mörthu Hermannsdóttur tannlækni sem og flúorskoli og tannburstagjöf fyrir alla nemendur.
Lesa meira