Fyrstu dagar skólaársins

Frá gönguferð að Hraunsvatni í fyrra
Frá gönguferð að Hraunsvatni í fyrra

 

Eins og áður hefur komið fram verður skólinn settur úti í Mörk, þriðjudaginn 23. ágúst kl. 16:00. Eftir stutta samveru þar fara nemendur með umsjónarkennara í heimastofur námshópanna. Einnig verður opið hús í þeim hluta hússins sem var gerður upp í sumar. 

Daginn eftir, miðvikudaginn 24. ágúst, er viðtalsdagur skólans og umsjónarkennarar hafa þegar sent öllum forráðamönnum upplýsingar vegna viðtalstímanna í tölvupósti.

Fimmtudaginn 25. ágúst er göngudagur skólans. Þá halda nemendur og starfsmenn í fjórar mismunandi gönguferðir sem hæfa aldri og þroska nemenda.

  • 1.-4. bekkur áforma að fara í skóginn við Dagverðareyri. Með þeim fara, Anna Rós, Jónína Sv., Þráinn og Gréta. 
  • 5.-6. bekkur ganga að Baugaseli. Með þeim fara Hulda og Berglind. Muna að vera klædd eftir veðri. 
  • 7.-8. bekkur ganga að Reistarárskarð. Gengið verður frá Freyjulundi. Með þeim fara Inga, Ragna, Sigga Guðmunds og Unnar.
  • 9.-10. bekkur gengur á Litla hnjúk og Stóra hnjúk. Gengið verður í gegnum skógræktina að Vöglum og sem leið liggur upp á Litla hnjúk og þaðan á Stóra hnjúk. Með þeim fara Halla Björk og Ingileif.

Þessi dagur telst langur dagur því skólabílar fara frá skólanum kl. 16:00. Áður en nemendur halda í gönguferðirnar fá þeir staðgóðan morgunmat í skólanum. Starfsfólk mötuneytis sér um að útbúa hlaðborð fyrir nemendur með smurðum tortillavefjum, brauðmeti, áleggi, kjúklingaleggjum, ávöxtum og drykkjum þar sem nemendur geta búið sér til nesti. Hægt verður að velja á milli safa eða kókómjólkur. Nemendur þurfa samt að hafa með sér nestisbox og vatnsbrúsa að heiman.

Þeir sem heldur vilja hafa með sér nesti að heiman geta gert það, en sælgæti, snakk og gos eru ekki leyfð í gönguferðunum.

Dagskrá göngudagsins er eftirfarandi:

5.-10. bekkur

Klukkan

Hvað

8:20-9:15

Morgunmatur og nestisgerð

9:30

Rútur fara frá skóla

14:30

Áformað að koma heim að skóla.

14:30-16:00

Hressing, heitur pottur og sund í Jónasarlaug

 

1.-4. bekkur

Klukkan

Hvað

8:20-9:20

Með umsjónarkennara

9:20-10:00

Morgunmatur, nestisgerð og rúta fer frá skóla

14:00

Áformað að koma heim að skóla.

14:00-16:00

Leikur, hressing, heitur pottur og sund í Jónasarlaug

 

Við vonum að veðrið verði heppilegt til útivistar þennan dag. Þá er bara að muna:

  • að búa sig eftir veðri og gönguleið
  • taka með sér bakpoka, nestisbox og vatnsbrúsa
  • sundföt svo hægt sé að láta gönguþreytuna líða úr sér í Jónasarlaug

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá föstudaginn 26. ágúst. Þann dag er heimferð kl. 12:45.