Umsjónarkennarar við Þelamerkurskóla

Við Þelamerkurskóla eru lausar til umsóknar tvær stöður umsjónarkennara. Óskað er eftir að ráða skipulagða, sveigjanlega og skapandi grunnskólakennara með mikla hæfni í samskiptum við börn. Umsjónarkennarinn vinnur í teymi með öðrum kennurum. Í skólanum eru 100 nemendur. Á yngsta stigi verður frá haustinu 2024 einn bekkur í hverjum árgangi og í 5.-10. bekk er samkennsla tveggja árganga. 

Í Þelamerkurskóla er starfað með markvissum hætti í anda skóla fyrir alla og þannig lögð rík áhersla á að búa öllum nemendum aðstæður til náms við hæfi hvers og eins, nokkuð sem krefst, samvinnu, sveigjanleika og lausnamiðaðrar hugsunar hjá öllu starfsfólki. Einkunnarorð skólans eru þroski, menntun og samkennd. Í skólanum er starfað eftir hugmyndafræði Jákvæðs aga og Byrjendalæsis. Skólinn er  heilsueflandi skóli auk þess sem áhersla er lögð á útikennslu, rafræna kennsluhætti og skapandi starf.

Helstu verkefni

  • Annast almenna umsjónarkennslu og vinna í teymi.

  • Stuðla að velferð nemenda í góðu samstarfi við foreldra/forráðamenn og stoðþjónustu innan skólans sem utan.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.

  • Þekking á og reynsla af innleiðingu og notkun Byrjendalæsis.

  • Reynsla af starfi með fjölbreyttum nemendahópi.

  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi er nauðsynlegt.

  • Áhugi á að ná fram því besta úr hverjum nemanda.

  • Mikil færni í samvinnu og teymisvinnu.

  • Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæð vinnubrögð.

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2024. Umsóknarfrestur er t.o.m. 19. apríl 2024. Óskað verður eftir meðmælum. Ferilskrá og umsókn skal senda á netfang skólastjóra ragnheidurlilja@thelamork.is  Upplýsingar um Þelamerkurskóla er að finna á heimasíðu skólans, https://www.thelamork.is/  Frekari upplýsingar veitir Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir, skólastjóri, ragnheidurlilja@thelamork.is og í síma 460-1770/866-4085.