Fréttir

03.05.2024

Sigur í Skólahreysti

Lið Þelamerkurskóla gerði sér lítið fyrir og sigraði sinn riðil í Skólahreysti sl. þriðjudagskvöld. Liðið skipa þau Björn Sigurður, Ester Katrín, Jósef Orri og Sandra Björk. Til vara voru þau Anna Lovísa og Alex Jón tilbúin að stökkva til. Keppt var í fjórum greinum og sigraði okkar fólk þrjár greinar af þeim fjórum. Þessi frábæri árangur skilaði liðinu 1. sætinu og um leið sæti í úrslitakeppni Skólahreystis á Íslandi, en hún verður haldin í Laugardalshöll þann 25. maí nk.
24.04.2024

Þelamerkurskóli sigrar stóru upplestrarhátíðina við Eyjafjörð

Í gær var Stóra upplestrarhátíð skóla við Eyjafjörð haldin við hátíðlega athöfn á Grenivík. Nemendur úr 7. bekk í sex skólum við Eyjafjörð lásu þar ýmist bókarkafla eða ljóð, áhorfendum til mikillar ánægju. Augljóst var að nemendur höfðu æft sig vel og stóðu þau sig öll með stakri prýði. Þær Tinna Margrét og Ylva Sól lásu fyrir hönd Þelamerkurskóla og gerðu það afbragðs vel. Ylva Sól gerði sér lítið fyrir og sigraði keppnina í ár, okkur öllum til mikillar ánægju.
23.04.2024

Gaman í frímó

Sólgleraugu, sápukúlur, krítar, sól og gleði í hjarta.
19.04.2024

Lesum saman