- Fréttir
- Skólinn
- Nemendur
- Sérstaða
- Þróunarverkefni
- Samstarf
- Farsæld
Í gær, 21. október mætti meginþorri nemenda og starfsmanna íklædd bleiku til að sýna samstöðu þeim konum sem greinst hafa með krabbamein. Einnig hófust hjá okkur þemadagar sem verða fram að helgi. Unnið er með ævintýri á fjölbreyttan hátt. Nemendur vinna verkefni ýmist með sínum bekk, með vinabekkjum eða í blönduðum hópum og fengu að velja sér viðfangsefni á stöð. Til dæmis má nefna að unnið er að kastalagerð úr morgunkornspökkum og fernum, farið í Quidditch í ævintýraíþróttum, gerðar grímur, töfrasprotar, fjársjóðskort, lært um tröll og vondar persónur og margt fleira. Ákveðið var að halda ekki opið hús í lok þemavinnunnar þetta árið en við minnum þó á að aðstandendur eru alltaf velkomnir til okkar í skólann. Hér má sjá myndir af bleikklæddu fólki og vinnunni við ævintýraþemað.
|
Laugalandi | 604 Akureyri Sími á skrifstofu: 460-1770 Netfang: thelamork@thelamork.is Kt: 510101-3830 Skrifstofa skólans er opin: Mán-fim: kl. 07:45 - 16:00 Fös: kl. 07:45-15:00 |
Skólastjóri: 460-1770 Frístund: 460-1771 |