Ævar Þór Benediktsson rithöfundur kom í heimsókn til okkar og sagði nemendum 3ja - 8unda bekkjar frá nýjustu bókinni sinni, Teiknimyndaránið. Það er alltaf gaman að fá Ævar í heimsókn til okkar, hann nær sérlega vel til krakkanna, segir skemmtilega frá og er einstaklega lestrarhvetjandi. Bækur Ævars eru ávallt vinsælar meðal nemenda og gátu nemendur núna komið með skemmtilegar hugmyndir fyrir hann að fleiri bókum til að skrifa. Við þökkum Ævari kærlega fyrir komuna. Hér eru nokkrar myndir.
|
Laugalandi | 604 Akureyri Sími á skrifstofu: 460-1770 Netfang: thelamork@thelamork.is Kt: 510101-3830 Skrifstofa skólans er opin: Mán-fim: kl. 07:45 - 16:00 Fös: kl. 07:45-15:00 |
Skólastjóri: 460-1770 Frístund: 460-1771 |