Félagsvist - ánægjuleg samverustund

Það var afar ánægjulegt hjá okkur síðasta föstudag þegar eldri borgarar Hörgársveitar komu í heimsókn til nemenda í 7.–10. bekk. Heimsóknin var ekki án tilefnis, því gestirnir komu til að spila félagsvist með krökkunum.

Markmið skólans er að efla samstarf og tengsl milli yngri og eldri kynslóða. Eldra fólkið var mjög duglegt að leiðbeina þeim yngri og gaman að sjá hvað þau yngri tóku vel á móti leiðsögninni.

Veitt voru verðlaun fyrir flest og fæst stig og auk þess voru veitt sérstök setuverðlaun. Það var sérstaklega skemmtilegt að fylgjast með samverunni og vonumst við til þess að þessi viðburður verði fastur liður í skólastarfinu framvegis.

 Hérna eru myndir.