Frétt frá 1. bekk

Við í 1. bekk höfum undanfarnar tvær vikur unnið með bækurnar Kroppurinn er kraftaverk og Komdu að skoða líkamann. Markmiðið með þeim bókum var að læra um stafina V v og T t. Nemendur lærðu einnig um fjölbreytileikann, heilbrigða sjálfsmynd, líkamsvitund og líkamsvirðingu. Við ræddum um hvernig við urðum til, hvernig líkaminn okkar lítur út að innan (beinagrind), skoðuðum helstu líffærin og lærðum um hvernig þau starfa ofl. Margar skemmtilegar umræður sköpuðust og börnin voru virkilega áhugasöm. Algjörlega mögnuð vinna að baki. 

Hérna eru nokkrar myndir frá verkefnavinnunni.