Þelamerkurskóli átti frábæran dag á Grunnskólamóti á Laugum sem fram fór á Laugum föstudaginn 25. september. Um 240 nemendur frá 11 grunnskólum tóku þátt í mótinu og komu víða að, allt frá Vopnafirði að Hörgársveit. Það var virkilega góð þátttaka frá okkur og fóru alls 31 nemandi úr 7.-10. bekk. Þetta er íþróttamót og kepptu þau í fjölbreyttum íþróttagreinum, þrautabraut, skotbolta, körfubolta og blaki. Þau sem ekki vildu taka þátt í íþróttakeppninni stóðu sig vel í að styðja samnemendur sína og hvatningin var gríðarleg. Stemmingin var frábær allan daginn og allir lögðu sig fram við að ná sem bestum árangri. Nemendur voru til fyrirmyndar og stóðu sig einstaklega vel á öllum vígstöðum.
Eftir íþróttakeppnina var hamborgari í kvöldmatinn og að honum loknum var í boði að fara í sundlaugarpartý eða bíó. Margir völdu einnig að rölta um og eiga samskipti við nemendur úr öðrum skólum. Dagurinn var frábær og allir skemmtu sér vel.
Hér má sjá myndir frá deginum.