- Fréttir
- Skólinn
- Nemendur
- Sérstaða
- Þróunarverkefni
- Samstarf
- Farsæld
Nemendur í 3. og 4. bekk luku nýverið afar áhugaverðri og fjölbreyttri þemavinnu í Byrjendalæsi þar sem humlur voru í aðalhlutverki. Í þemanu var lögð áhersla á að nemendur lærðu í verki um þessar mikilvægu lífverur og var sköpunargleðin svo
sannarlega ríkjandi í allri vinnu þeirra.
Í upphafi lásu nemendur sér til og hlustuðu á fræðitexta um humlur. Í framhaldinu söfnuðu þau vallhumal sem var settur í olíu og látinn marinerast í fjórar vikur. Úr þessari blöndu og býflugnavaxi bjuggu krakkarnir til sinn eigin græðandi salva.
Sköpunargleðin réð ríkjum þar sem krakkarnir hönnuðu humluspil, bjuggu til fræðandi humlubæklinga og spurningar fyrir Kahoot leik sem hópurinn spilaði svo við mikla hrifningu. Nemendur ímynduðu sér líka að þeir væru humlur í einn dag og skrifuðu um það sögur og sumir gerðu líka teiknimyndasögur. Í útiskólanum fylgdust krakkarnir með humlum og bjuggu til humlu myllu úr hráefnum náttúrunnar. Það var svo virkilega fróðlegt og vakti mikla lukku að skoða humlu, býflugu, geitung og geitungabú í víðsjá.
Hápunktur þemans var þó þegar Kristín Birna, býflugnabóndi á Brúnastöðum, heimsótti hópinn í vinnugallanum sínum. Hún var með ýmsan fróðleik, sýndi myndir, leyfði nemendum að skoða býflugur og býflugnabú og að lokum fengu allir að smakka ljúffengt hunang.
Í allri vinnunni skein forvitni og áhugi nemenda í gegn sem var virkilega ánægjulegt að fylgjast með og ljóst að þemað verður mörgum eftirminnilegt. Hér má sjá myndir frá þemanu.
|
Laugalandi | 604 Akureyri Sími á skrifstofu: 460-1770 Netfang: thelamork@thelamork.is Kt: 510101-3830 Skrifstofa skólans er opin: Mán-fim: kl. 07:45 - 16:00 Fös: kl. 07:45-15:00 |
Skólastjóri: 460-1770 Frístund: 460-1771 |