Jólaskautar og jólaföndur

Fimmtudaginn 18. desember var mikið um að vera hjá okkur. Nemendur og starfsfólk byrjuðu morguninn á að fara á skauta þar sem öll skemmtu sér konunglega. Þegar heim var komið fengum við jólagraut í hádegismat og svo hófst mikið húllumhæ þegar foreldrar, ömmur, afar, frænkur, frændur og aðrir aðstandendur streymdu í skólann til að föndra og eiga fallega stund saman. Það er óhætt að segja að það hafi verið vel mætt á jólaföndrið en fólk hafði orð á hversu notaleg og góð stemning hafi verið þrátt fyrir mikinn fjölda. Starfsfólk var búið að undirbúa nokkrar föndurstöðvar, eina tæknistöð og svo var líka í boði að horfa á jólamynd. Ferðasjóður seldi vöfflur og gekk allt glimrandi vel. Við þökkum ykkur kærlega fyrir komuna en það er svo ómetanlegt að finna þennan velvilja ykkar og þakklæti í garð skólans.

Hérna eru myndir frá jólaskautum og jólaföndri.