Lærum um vistkerfi, lífríkið, plöntur og söfnum birkifræjum: Hvað eru 7. og 8. bekkingar búnir að vera að læra?

Í haust kynntu nemendur sér hugtök eins og vistkerfi og lífbreytileiki. Þau lásu í bókum, horfðu á fræðslumyndbönd og öfluðu sér upplýsinga um fjölbreytt efni. Þau lærðu um smádýr, sveppi, plöntur og ljóstillífun. Sumum fannst athyglisvert að sveppir geti t.d. vaxið á líkama fólks. Þau kynntu sér plöntuvefinn, völdu sér eina plöntu og tóku saman efni um plöntuna. Þau fræddust um fyrirbærið ljóstillífun og útbjuggu sjálf skemmtilegt fræðsluefni fyrir börn á aldrinum 8-10 ára. Smádýragildrur voru lagðar út á skólalóðinni, afrakstur sem safnaðist í þær var skoðaður í víðsjá og skráðar niður allskonar upplýsingar um dýrin. Einn dag skellti hópurinn sér út og safnaði birkifræjum af fallegu birkitrjánum sem eru víða í kringum skólann. Fræjunum verður skilað inn til Skógræktarinnar sem einn aðila sem koma að landsátakinu í að safna og dreifa birkifræjum á Íslandi.

Nemendur 7. og 8. bekkjar.