Laus staða umsjónarkennara á yngsta stigi

Umsjónarkennari á yngsta stigi við Þelamerkurskóla

Við Þelamerkurskóla er laus til umsóknar staða umsjónarkennara í 1.-2. bekk. Óskað er eftir að ráða fjölhæfan, sveigjanlegan og skapandi grunnskólakennara með mikla hæfni í samskiptum við börn. Umsjónarkennarinn vinnur í kennarateymi 1.-2. bekkjar. Í skólanum eru 72 nemendur og fer þeim ört fjölgandi á næstu árum.

Í Þelamerkurskóla er starfað með markvissum hætti í anda skóla fyrir alla og þannig lögð rík áhersla á að búa öllum nemendum aðstæður til náms við hæfi hvers og eins, nokkuð sem krefst sveigjanleika og skapandi hugsunar hjá öllu starfsfólki. Einkunnarorð skólans eru þroski, menntun og samkennd. Í skólanum er starfað eftir hugmyndafræði Jákvæðs aga og Byrjendalæsis. Skólinn er heilsueflandi skóli auk þess sem áhersla er lögð á rafræna kennsluhætti, útikennslu, teymisvinnu og skapandi starf.

Helstu verkefni

  • Annast almenna umsjónarkennslu í kennarateymi 1.-2. bekkjar.
  • Stuðla að velferð nemenda í góðu samstarfi við foreldra/forráðamenn og stoðþjónustu innan skólans sem utan.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
  • Þekking á og reynsla af innleiðingu og notkun Byrjendalæsis er kostur.
  • Reynsla af starfi með fjölbreyttum nemendahópi er kostur.
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Áhugi á að ná fram því besta úr hverjum nemanda.
  • Færni í samvinnu og teymisvinnu.
  • Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.

Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störf við skólann. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2022. Umsóknarfrestur er t.o.m. 27. apríl 2022. Ferilskrá og umsókn skal senda á netfang skólastjóra ragnheidurlilja@thelamork.is Upplýsingar um Þelamerkurskóla er að finna á heimasíðu skólans, https://www.thelamork.is/ Frekari upplýsingar veitir Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir, skólastjóri, ragnheidurlilja@thelamork.is og í síma 460-1770/866-4085.