Lokahóf leikjastjóranna

Leikjastjórar vetrarins
Leikjastjórar vetrarins
Á þriðjudaginn, 20. maí, áttu leikjastjórar skólans góða stund saman í blíðunni og uppskáru eftir góðan vetur. Hlutverk leikjastjóranna er að vera með leiki í frímínútum fyrir nemendur. Þeim er skipt í hópa, velja leik og sjá svo um leik svona fjórum sinnum á hvorri önn. Markmiðið með þessu verkefni er meðal annars að vinna gegn einelti með því að bjóða upp á jákvæða afþreyingu á skólalóðinni í frímínútum með fjölbreyttum leikjum. Við viljum að öllum nemendum líðiti vel í skólanum og taki þátt með jákvæðni í að gera skólann enn betri en hann er.
Flottur hópur af krökkum sem hafa unnið flotta vinnu á skólaárinu og staðið sig vel.