Möguleg röskun á skólaakstri fimmtudaginn 19. mars

Á morgun, fimmtudaginn 19. mars, er mikil vindaspá í kortunum og má búast við miklum vindi frá morgni og fram eftir degi. Samkvæmt viðbragðsáætlun skólans mega skólabílar ekki keyra ef vindur fer yfir 24 m/s eða ef appelsínugul viðvörun er í gildi. Eins og útlitið er núna lítur út fyrir að vindur fari yfir 24 m/sek og í slíkum aðstæðum mega skólabílar ekki keyra. Fari svo verður enginn skólaakstur í fyrramálið en foreldrar geta keyrt börn sín í skólann en við biðjum ykkur að aka með fyllstu aðgát. Við sendum út tilkynningu í fyrramálið og biðjum ykkur að fylgjast með á heimasíðu og facebook síðu skólans. 

Tomorrow, Thursday March 19th, there will be strong wind from early morning till noon. School buses are not allowed to drive if the wind is stronger than 24m/s. Tomorrow it is very likely that the wind will be too strong for school buses to drive, but parents are allowed to drive their children to school if they choose to. School will start at 8:15 as usual. More information will be sent out tomorrow morning.