Ólympíuhlaup ÍSÍ

Hlaupið í Hálsaskógi
Hlaupið í Hálsaskógi

Ólympíuhlaup ÍSÍ, sem áður hét norræna skólahlaupið, hefur verið fastur liður í skólanum til fjölda ára. Hlaupið fór fram 17. september síðastliðinn í Hálsaskógi. Byrjað var á sameiginlegri upphitun og síðan gátu nemendur valið um að hlaupa, skokka eða ganga 2,5 eða 5 km hring í skóginum. Fjölmargir nemendur fóru fleiri en einn hring. Á nokkrum stöðum í skóginum voru starfsmenn skólans með tónlist og hvatningu til nemenda um að halda áfram og allir gátu fengið sér vatn til að svala þorstanum og ávexti að hlaupi loknu. Nemendur skólans eru 112 talsins og samtals hlupu þau 615 km. Vel gert krakkar! Hér má sjá myndir frá hlaupinu.