Öskudagsskemmtun

Það var mikið húllumhæ í skólanum í dag. Nemendur og starfsfólk mættu í búningum í skólann og skemmtu sér konunglega saman. Met þátttaka var í söngkeppni öskudagsliða og veitti dómnefnd nokkrar viðurkenningar til dæmis fyrir söng, frumlegheit, liðsheild og fleira. Eftir söngkeppnina var kötturinn sleginn úr tunninni, í ár vorum við með tvær tunnur, eina tunnu fyrir yngra stig og aðra tunnu fyrir eldra stig. Tunnukóngur á yngra stigi var Melkorka Myrra í 3. bekk og á eldra stigi voru það Víkingur Tristan í 7. bekk og Ágúst Marinó í 8. bekk sem deildu titlinum með sér. Eftir að kötturinn var sleginn úr tunninni var marsering. Hérna eru myndir frá þessum velheppnaða degi.