Þriðjudaginn 2. mars fór 1.-2. bekkur í skíðaskóla upp í Hlíðarfjall. Miðvikudaginn 5. mars fóru þau aftur ásamt 3.-4. bekk. Nemendur skíðuðu í frábæru veðri og enduðu á að fá sér hressingu áður en lagt var af stað heim úr Hlíðarfjalli. Nemendur fengu skíðakennslu frá skíðakennurum, foreldrum og starfsfólki skólans. Einnig tóku 10 nemendur úr 7.-10. bekk þátt í skíðakennslunni og stóðu þau sig afar vel.
Í skíðaskólanum áttum við frábært samstarf við foreldrafélag skólans en 20 foreldrar komu þessa tvo daga upp í fjall og aðstoðuðu nemendur við að fara í og úr búnaði, við lyfturnar, í skíðabrekkunum og í hressingunni. Kunnum við foreldrahópnum bestu þakkir fyrir þeirra aðstoð. Það var magnað að fylgjast með framförum nemenda nemenda í skíðaskólanum og hér má sjá myndir frá þessum tveimur dögum.
|
Laugalandi | 604 Akureyri Sími á skrifstofu: 460-1770 Netfang: thelamork@thelamork.is Kt: 510101-3830 Skrifstofa skólans er opin: Mán-fim: kl. 07:45 - 16:00 Fös: kl. 07:45-15:00 |
Skólastjóri: 460-1770 Frístund: 460-1771 |