Starfamessa hjá 9. og 10. bekk

Starfamessa var haldin þann 12. mars í Háskólanum á Akureyri. Nemendur í 9. og 10. bekk lögðu leið sína þangað og fengu kynningar á fjölbreyttum störfum. Þar fengu þau meðal annars að taka á móti barni, fljúga flugvél og prófa rafsuðu í gegnum sýndarveruleika. Það var virkilega gaman að sjá hversu ólíkir starfsvettvangar voru kynntir og vonandi hefur dagurinn gefið nemendum hugmyndir um hvað þau gætu viljað starfa við í framtíðinni.

Hérna eru nokkrar myndir frá deginum.