Vorferð 5.-10. bekkjar

Miðvikudaginn 28. maí voru vorferðir nemenda. Dagurinn var einstaklega vel heppnaður en nemendur byrjuðu daginn á að skella sér út á Hauganes í hvalaskoðun og á sjóstöng. Við sáum nokkrar litlar hnísur en þær eru frekar styggar og því var farið að leita að hnúfubökum. Við fundum tvo slíka utar í firðinum og náðum að fylgja þeim eftir í svolitla stund, heyrðum hljóðin í þeim, sáum þá blása og sýna sporðinn! Að því loknu var prófað að renna fyrir fisk en enginn fiskur beit á í þetta skiptið.
 
Að lokinni frábærri siglingu var farið í göngutúr um Hauganes, kíkt á hoppibelginn og lítið leiksvæði í þorpinu. Við borðuðum grillaða hamborgara sem runnu ljúflega niður og lékum okkur við Árskógarskóla. Að lokum var ferðinni heitið inn á Akureyri þar sem nemendur höfðu val um þrennt; folf á Hamarskotstúni, sund í Akureyrarlaug eða rölt niður Oddareyrargötu með stoppi í Ævintýragarðinum og á Amtsbókasafninu. 
 
Þetta var dásamlegur dagur og voru nemendur til fyrirmyndar hvert sem þau komu. Öll skemmtum við okkur vel og nutum dagsins saman. Hérna eru skemmtilegar myndir frá ferðinni okkar.