Atvinna - lausar stöður

Þelamerkurskóli er grunnskóli í Hörgársveit og verða um 120 nemendur í skólanum nk. haust. Í Þelamerkurskóla er starfað með markvissum hætti í anda skóla fyrir alla og þannig lögð rík áhersla á að búa öllum nemendum aðstæður til náms við hæfi hvers og eins, nokkuð sem krefst samvinnu, sveigjanleika og lausnamiðaðrar hugsunar hjá öllu starfsfólki. Einkunnarorð skólans eru þroski, menntun og samkennd. Í skólanum er starfað eftir hugmyndafræði Jákvæðs aga, leiðsagnarnáms og Byrjendalæsis. Skólinn er heilsueflandi skóli auk þess sem áhersla er lögð á útikennslu, nýsköpun og skapandi starf. 

Við óskum eftir að ráða í eftirfarandi stöður frá og með 1. ágúst 2026. Umsóknarfrestur er til og með 20. mars 2026.

 

Skólaliði sem sinnir þrifum, gæslu og aðstoð í mötuneyti

Óskað er eftir barngóðri, áreiðanlegri og metnaðarfullri manneskju í 100% starf. Starfið felur í sér aðstoð í mötuneyti, styðja við nemendur í matsal, frímínútum, á göngum og skólalóð auk þess að halda skólahúsnæðinu hreinu. Jafnframt getur til fallið önnur gæsla og tilfallandi stuðningur eftir þörfum.

Helstu verkefni:

  • Aðstoða nemendur í leik og starfi og leiðbeina þeim í umgengni og samskiptum.

  • Stuðla að velferð nemenda í góðu samstarfi við starfsfólk skólans.

  • Sinna gæslu hvar og hvenær sem þörf er á.

  • Sjá um dagleg þrif skólahúsnæðis og innkaup á ræstivörum.

  • Aðstoða í mötuneyti og matsal.

  • Taka þátt í því uppeldisstarfi sem fram fer innan skólans í anda stefnunnar um jákvæðan aga. 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.

  • Reynsla af starfi í mötuneyti er kostur.

  • Mikil áhersla er á lipurð og færni í samskiptum við börn og fullorðna.

  • Stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.

  • Sveigjanleiki og jákvæðni.

  • Íslenskukunnátta nauðsynleg.

 

Stuðningsfulltrúi og starfsmaður í frístund

Óskað er eftir barngóðri, áreiðanlegri og metnaðarfullri manneskju í 100% starf. Starfið felur í sér stuðning á yngsta stigi, gæslu í frímínútum, á göngum og skólalóð ásamt starfi í frístund eftir að skóla lýkur. Jafnframt getur til fallið önnur gæsla eða þrif eftir þörfum.

Helstu verkefni:

  • Aðstoða nemendur í leik og starfi og leiðbeina þeim í umgengni og samskiptum.

  • Stuðla að velferð nemenda í góðu samstarfi við starfsfólk skólans.

  • Sinna gæslu hvar og hvenær sem þörf er á.

  • Taka þátt í því uppeldisstarfi sem fram fer innan skólans í anda stefnunnar um jákvæðan aga. 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.

  • Mikil áhersla er á lipurð og færni í samskiptum við börn og fullorðna.

  • Stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.

  • Sveigjanleiki og jákvæðni.

  • Íslenskukunnátta nauðsynleg.


Deildarstjóri í stjórnendateymi ásamt kennslu á unglingastigi

Leitað er eftir kennara í 80% starf deildarstjóra en viðkomandi mun sjá um stærðfræði- og íslenskukennslu á unglingastigi ásamt því að vera hluti af stjórnendateymi skólans og vera staðgengill skólastjóra. Viðkomandi þarf að búa yfir leiðtogahæfni, vera faglega sterkur og reiðubúinn að taka að sér ábyrgðarhlutverk og faglega forystu.

 Helstu verkefni:

  • Er hluti af stjórnendateymi skólans og tekur virkan þátt í daglegri stjórnun hans og þróunarstarfi. Er staðgengill skólastjóra.

  • Er faglegur leiðtogi: Leiðir innleiðingu endurskoðaðrar aðalnámskrár ásamt skólastjóra, situr teymisvinnufundi og hefur leiðsögn með leiðsagnarnámi í öllum skólanum, veitir kennurum og starfsfólki ráðgjöf og ýtir undir öfluga teymisvinnu og nýsköpun.

  • Er lausnamiðaður og á í góðu samstarfi við nemendur, foreldra og starfsfólk skólans.

  • Sinnir kennslu í stærðfræði og íslensku á unglingastigi.

  • Tekur að sér forfallakennslu og gæslu þegar við á.

 Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og leyfisbréf í kennslu.

  • Leiðtogafærni, sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum.

  • Mikil færni í samvinnu og teymisvinnu.

  • Metnaður, áhugi og vilji til árangurs.

  • Góð íslensku- og stærðfræðikunnátta.

  • Þekking og reynsla af leiðsagnarnámi nauðsynleg.

  • Reynsla af starfi með fjölbreyttum nemendahópi er æskileg.

  • Sýnir metnað og áhuga á að ná fram því besta úr hverjum nemanda.

  • Góð tæknikunnátta og hæfni til að tileinka sér nýjungar og nýsköpun í skólastarfi.

 

Umsjónarkennarar á yngsta-, mið- og unglingastigi

Óskað er eftir að ráða skipulagða, sveigjanlega og skapandi grunnskólakennara með mikla hæfni í samskiptum og teymisvinnu í 80-100% starf.

Helstu verkefni:

  • Annast almenna umsjónarkennslu þvert á greinasvið og vinnur í teymi.

  • Stuðlar að velferð nemenda í góðu samstarfi við foreldra/forráðamenn og stoðþjónustu innan skólans sem utan.

  • Tekur þátt í þróunarstarfi skólans og fylgir stefnu og áhersluþáttum skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.

  • Umsjónarkennari á unglingastigi þarf að búa yfir mjög góðri færni í upplýsingatækni, ensku og íslensku. Hann þarf að leiða öfluga tungumálakennslu á unglingastigi auk þess að vera leiðandi í upplýsingatækni.

  • Umsjónarkennari á yngsta- og miðstigi þarf að búa yfir mjög góðri færni þvert á námsgreinar miðstigs og er góð tölvu- og tæknikunnátta nauðsynleg.

  • Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli.

  • Þekking og reynsla af Byrjendalæsi æskileg.

  • Reynsla af starfi með fjölbreyttum nemendahópi er æskileg.

  • Sýnir metnað og áhuga á að ná fram því besta úr hverjum nemanda.

  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi er nauðsynleg.

  • Mikil færni í samvinnu og teymisvinnu.

  • Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæð vinnubrögð.

  • Góð tölvu- og tæknikunnátta.


50% starf kennara í hönnun og smíðum - 50% starf kennara í textílmennt

Óskað er eftir að ráða skapandi, skipulagðan og sveigjanlegan kennara sem finnst gaman að vinna með börnum og unglingum. Smíða- og textílmenntakennarar vinna í teymi með öðrum kennurum ásamt stuðningsfulltrúum og stoðteymi. 

Helstu verkefni:

  • Annast almenna list- og verkgreinakennslu í 1.-6. bekk, ásamt valgreinum á mið- og unglingastigi.

  • Sinna stoðtímum í list- og verkgreinum þar sem m.a. nýsköpun og tækni fær notið sín.

  • Stuðla að velferð nemenda í góðu samstarfi við foreldra/forráðamenn, umsjónarkennara og stoðþjónustu innan skólans sem utan.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.

  • Góð færni í faginu.

  • Áhugi og þekking á nýsköpun og tækni og vilji til að taka þátt í þróunarstarfi.

  • Reynsla af starfi með fjölbreyttum nemendahópi er kostur.

  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi er nauðsynlegt.

  • Mikil færni í samvinnu og teymisvinnu.

  • Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæð vinnubrögð.

 

50% starf við íþróttakennslu

Óskað er eftir að ráða drífandi og kraftmikinn íþróttakennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur. Um 50% starf er að ræða. Með möguleika á aukningu starfshlutfalls með annarri kennslu.

Helstu verkefni:

  • Annast almenna íþróttakennslu í 1.-10. bekk.

  • Kennir valgrein á mið- og unglingastigi.

  • Er í teymi með öðrum íþróttakennara.

  • Stuðlar að velferð nemenda í góðu samstarfi við foreldra/forráðamenn og stoðþjónustu innan skólans sem utan.

  • Tekur þátt í þróunarstarfi skólans og fylgir stefnu og áhersluþáttum skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.

  • Haldgóð þekking á kennslufræði íþrótta.

  • Reynsla af starfi með fjölbreyttum nemendahópi er æskileg.

  • Sýnir metnað og áhuga á að ná fram því besta úr hverjum nemanda.

  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi er nauðsynleg.

  • Mikil færni í samvinnu og teymisvinnu.

  • Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæð vinnubrögð.

  • Góð íslenskukunnátta.


Umsóknarfrestur er t.o.m. 20. mars 2026. Óskað verður eftir meðmælum en krafist verður góðra meðmæla og eru þau skilyrði fyrir ráðningu. Í öllum störfum við Þelamerkurskóla er gerð krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað samrýmist starfinu.

Ferilskrá, umsókn og greinargerð skal senda á netfang skólastjóra: annarosa@thelamork.is Upplýsingar um Þelamerkurskóla er að finna á heimasíðu skólans, https://www.thelamork.is/  Frekari upplýsingar veitir Anna Rósa Friðriksdóttir, skólastjóri, annarosa@thelamork.is og í síma 460-1770.