Laus staða umsjónarkennara á yngsta stigi

Við Þelamerkurskóla er laus til umsóknar staða umsjónarkennara á yngsta stigi. Óskað er eftir að ráða skipulagðan, sveigjanlegan og skapandi grunnskólakennara með mikla hæfni í samskiptum við börn. Umsjónarkennarinn vinnur í teymi með öðrum kennurum. Í skólanum verða frá haustinu 95 nemendur. Tveggja árganga samkennsla er frá 3. bekk og uppúr.

Í Þelamerkurskóla er starfað með markvissum hætti í anda skóla fyrir alla og þannig lögð rík áhersla á að búa öllum nemendum aðstæður til náms við hæfi hvers og eins, nokkuð sem krefst sveigjanleika og lausnamiðaðrar hugsunar hjá öllu starfsfólki. Einkunnarorð skólans eru þroski, menntun og samkennd. Í skólanum er starfað eftir hugmyndafræði Jákvæðs aga og Byrjendalæsis. Skólinn er  heilsueflandi skóli auk þess sem áhersla er lögð á útikennslu, rafræna kennsluhætti og skapandi starf.

Helstu verkefni

  • Annast almenna umsjónarkennslu og vinna í teymi.

  • Stuðla að velferð nemenda í góðu samstarfi við foreldra/forráðamenn og stoðþjónustu innan skólans sem utan.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.

  • Þekking á og reynsla af innleiðingu og notkun Byrjendalæsis. 

  • Reynsla af starfi með fjölbreyttum nemendahópi er kostur.

  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.

  • Áhugi á að ná fram því besta úr hverjum nemanda.

  • Færni í samvinnu og teymisvinnu.

  • Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæð vinnubrögð.

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2023. Umsóknarfrestur er t.o.m. 15. maí 2023. Óskað verður eftir meðmælum. Ferilskrá og umsókn skal senda á netfang skólastjóra ragnheidurlilja@thelamork.is  Upplýsingar um Þelamerkurskóla er að finna á heimasíðu skólans, https://www.thelamork.is/  Frekari upplýsingar veitir Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir, skólastjóri, ragnheidurlilja@thelamork.is og í síma 460-1770/866-4085.