Eins og vanalega var margt í gangi í skólanum síðustu dagana fyrir sumarfrí. Hver bekkur gekk vel frá sinni stofu og öllum þeim gögnum sem þau hafa notað í vetur auk þess sem flestir námshópar skiptu um kennslustofu eða -rými. Í haust verður tekin í notkun neðri hæð heimavistarhússins, sem kallað er Árbakki, og þangað fara 7.-10. bekkur og 5. og 6. bekkur verða á efri-Árbakka. Því verður eingöngu yngsta stig á gamla, góða kennsluganginum, sem nú er kallaður Skógar. Langþráður draumur okkar mun því rætast á komandi skólaári þegar stofum 4 og 5, við norðurenda Skóga, verður breytt í sal.
28. maí fóru allir nemendur og starfsfólk í vorferð, 5.-10. bekkur fóru í skemmtilega ferð í Eyjafirði, eins og sjá má í þessari frétt. 1.-4. bekkur gerðust víðförulli og heimsóttu Skagafjörð. Þau heimsóttu Glaumbæ þar sem þau fengu stuttan leik til að fara í meðan þau skoðuðu bæinn. Þá fóru þau í Litla-Skóg á Sauðárkróki þar sem þau fóru í gönguferð, grilluðu hamborgara og léku sér í allskonar veðri. Á heimleiðinni var stoppað í Varmahlíð þar sem öll fengu ís í sjoppunni, sem vakti mikla lukku og að lokum var endað í sundi í Jónasarlaug. Hér eru myndir úr ferðinni.
Mánudaginn 2. júní var komið að Þelamerkurleikunum. Veðurútlitið var ekki til að hrópa húrra yfir þar sem gul viðvörun var í gildi vegna vinds og snjókomu. Úr því rættist þó og sluppum við að mestu þurr og mörg fóru meira að segja úr úlpunum meðan þau kepptu. Keppt var í fjölbreyttum greinum, s.s. tröppuhlaupi, limbó, actionary og stígvélakasti. Hér eru myndir frá leikunum. Stjórnendur þurftu að bregðast við enn verri veðurviðvörunum þar sem daginn eftir tók appelsínugul viðvörun gildi og því var ákveðið að flýta skólaslitum 1.-6. bekkjar sem fara áttu fram á þriðjudag til hádegis á mánudag. Mjög gott var að sjá hversu mörg heimili gátu brugðist fljótt við og skólaslitin fóru fram í salnum okkar fyrir fullu húsi. Fráfarandi 10. bekkingar buðu verðandi 1. bekkinga velkomna í skólann, hver bekkur kvaddi kennarana sína og Brynjari Loga í 5. bekk fékk afhent Sólskinsverðlaun Þelamerkurskóla 2025 fyrir að skara fram úr í háttvísi og hegðun. Á mánudagskvöldinu var svo komið að útskriftarkvöldverði 10. bekkinga með foreldrum þeirra og kennurum. Hér eru myndir frá skólaslitum yngsta stigs og útskriftarkvöldverðinum.
Í appelsínugulri viðvörun, þriðjudaginn 3. júní, var loks komið að "Vor"hátíðinni. Hún var með örlítið öðruvísi en fyrri ár þar sem eingöngu tæplega 30 nemendur mættu í skólann. Við létum það þó ekki á okkur fá og héldum nokkuð hefðbundnu skipulagi, þar sem útskriftarnemendur skoruðu á starfsfólk í blindrabolta og keppt var í boðhlaupi (í fyrsta skipti gátu allir nemendur tekið þátt). Að keppni lokinni var val um að fara í sund eða upp í skóla að spila áður en við gæddum okkur á grilluðum pylsum fyrir heimferð. Hér má sjá myndir frá vorhátíðinni. Skólaslit 7.-10. bekkjar fóru fram í Hlíðarbæ seinnipartinn, þar var einnig mjög ánægjulegt að sjá fullan sal fólks þrátt fyrir appelsínugula viðvörun. Hver bekkur kvaddi kennarana sína, kór skólans söng undir stjórn Heimis, Lára Rún og Hjördís Emma fluttu stórkostleg tónlistaratriði og Kaja Líf flutti kveðju frá útskriftarnemum. Nokkur verðlaun voru veitt: Sjónlistaverðlaun hlaut Aylin Irina, Smíðaverðlaun hlaut Ágúst Marinó og textílmenntaverðlaun hlutu Lára Rún og Efemía Birna. Jósef Orri hlaut dönsku- og íþróttaverðlaun, Elmar Darri hlaut framfaraverðlaun og Lára Rún hlaut Jónasarverðlaun fyrir árangur í íslenku. Hér eru myndir af skólaslitum og útskrift.
Við óskum ykkur öllum gleðilegs sumars, sjáumst við skólasetningu 22. ágúst.