Starf skólaliða laust til umsóknar

Þelamerkurskóli óskar eftir barngóðri og metnaðarfullri manneskju í 80-100% starf skólaliða. Skólaliði hefur umsjón með og styður við nemendur í matsal, frímínútum, á göngum, skólalóð og frítímum auk þess sem hann sér um að halda skólahúsnæðinu hreinu. 

Í Þelamerkurskóla eru 76 nemendur og fer skólinn hratt stækkandi á næstu árum. Skólinn er heilsueflandi skóli og Grænfána skóli. Jafnframt leggur skólinn áherslu á útinám og fjölbreytileika í skólastarfi, nokkuð sem krefst sveigjanleika og þátttöku alls starfsfólks.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðstoða nemendur í leik og starfi og leiðbeina þeim í umgengni og samskiptum.

  • Stuðla að velferð nemenda í góðu samstarfi við starfsfólk skólans.

  • Sinna gæslu hvar og hvenær sem þörf er á.

  • Sjá um dagleg þrif og innkaup á ræstivörum.

  • Aðstoða í eldhúsi ef þörf er á.

  • Taka þátt í því uppeldisstarfi sem fram fer innan skólans í anda stefnunnar um jákvæðan aga. 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.

  • Mikil áhersla er á lipurð og færni í samskiptum við börn og fullorðna.

  • Stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.

  • Sveigjanleiki og jákvæðni.

  • Íslenskukunnátta nauðsynleg.

Við hvetjum öll kyn til að sækja um störf við skólann. Umsóknarfrestur er t.o.m. 22. desember 2022. Ferilskrá og umsókn skal senda á netfang skólastjóra ragnheidurlilja@thelamork.is  Laun eru greidd skv. kjarasamningum Einingar/Iðju og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Upplýsingar um Þelamerkurskóla er að finna á heimasíðu skólans, https://www.thelamork.is/  Frekari upplýsingar veitir Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir, skólastjóri, ragnheidurlilja@thelamork.is og í síma 460-1770/866-4085.