Útivistardagur 8. september 2026

Á útivistardegi skólans höfðu 5.-10. bekkingar val um fjórar ferðir; veiðiferð, fjallgöngu, gönguferð um Glerárdal og krossaraferð. 
Dágóður hópur nemenda reyndi fyrir sér við veiðar í Hörgá en það er nýjung að bjóða upp á veiðiferð á útivistardegi skólans. Nemendur, starfsfólk og nokkrir úr hópi foreldra gengu niður að ósum Hörgár ásamt þeim Helga Steinssyni og Guðmundi Víkingssyni sem veittu nemendum leiðsögn og aðstoð. Þrátt fyrir að ekkert hafi veiðst skemmtu nemendur sér við margvíslega iðju, svo sem sílaföngun, vaða í tjörnum og grynningum, ganga um svæðið og spjalla við vini sína og borða grillaðar pylsur við árbakkann. Við þökkum Helga og Guðmundi kærlega fyrir leiðsögn og aðstoð í ferðinni. Önnur nýjung á útivistardegi var að bjóða upp á krossaraferð á æfingasvæði Kappakstursklúbbs Akureyrar. Nokkrir nemendur fengu foreldra í lið með sér við að ferja hjólin á staðinn og þeystu þar um í æfingabrautinni. Dágóður hópur nemenda valdi að fara í gönguferð inn á Glerárdal og gengu nemendur um 8 kílómetra hring frá Súlubílstæði inn að Stíflu og til baka að svæði Kappakstursklúbbs Akureyrar. Nemendur sem fóru á krossara og í gönguferð á Glerárdal grilluðu síðan saman pylsur áður en haldið var af stað heim í skóla. Að lokum er það fjallgönguhópurinn en sá hópur nemenda sem valdi fjallgöngu hófu göng við Skíðastaði í Hlíðarfjalli og gengur upp á Hlíðarfjall. Nemendur stoppuðu við Harðarvörðu og grilluðu pylsur upp á Hlíðarfjalli! Dagurinn var í alla staði vel heppnaður enda vorum við einstaklega heppin með veður. Hér má sjá myndir frá fjallgöngu, krossaraferð, gönguferð á Glerárdal og veiðiferð.