Fréttir

Nonni og Manni - samantekt, myndbönd og myndasafn

Nemendur og starfsfólk Þelamerkurskóla ákváðu að fara af krafti í þemavinnu um þá Nonna og Manna. Vinnan hófst með stuttri kynningu á þeim bræðrum og á sex vikna tímabili horfðu allir nemendur og starfsfólk saman á einn sjónvarpsþátt á viku um kappana og þeirra ævintýri. Þættirnir sex, sem nutu mikilla vinsælda fyrir mörgum árum síðan, féllu gríðarlega vel í kramið hjá nemendum og mátti sjá einbeitingu og áhuga skína úr hverju andlitið við áhorfið. Samhliða áhorfi á þættina söfnuðu nemendur orðum og hugtökum sem þeir leituðu skýringa á og bjuggu til myndverk og söguvegi út frá söguþræði einstakra þátta.
Lesa meira

Afmælisdagur skólans

Í dag 5. desember á Þelamerkurskóli afmæli. Hann er 56 ára. Í tilefni dagsins fengu allir lambalæri í matinn og ís í eftirrétt. Afmælissöngurinn var að sjálfsögðu sunginn við matarborðið. Auk þess var kynnt fyrir nemendum hugmyndasamkeppni um merkingu á skólanum. Nemendur, einir eða í hópi, rissa upp hugmynd að því hvernig þeir myndu vilja sjá skólann merktan að utan og skilafrestur hugmynda er í janúar. Við hlökkum til að sjá hvað krökkunum dettur skemmtilegt í hug.
Lesa meira

Gjöf frá Kvenfélagi Hörgdæla

Kvenfélag Hörgdæla hefur í gegnum tíðina sýnt Þelamerkurskóla mikinn velvilja. Nú hefur skólanum borist höfðingleg gjöf í formi peningaupphæða til hönnunar og smíðakennslu, myndmenntar og handmenntar. Kennarar þessara greina munu nýta gjöfina til að kaupa stærri tæki og tól sem án efa koma til með að hafa jákvæð áhrif á nám nemenda. Skólinn þakkar kvenfélaginu innilega fyrir gjöfina sem og almenna velvild.
Lesa meira

Hönnun og smíði hjá 3. og 4. bekk

Í hönnun og smíðum í dag fór 3. og 4. bekkur í risaeðluverkefni. Eftir innlögn kennara um risaeðlur þar sem meðal annars kom fram að risaeðlurnar hefðu drottnað yfir landrænu vistkerfi jarðar í meira en 160 milljón ár og í lok Krítartímabilsins, fyrir 65 milljónum ára hafi orðið hamfaraatburður sem olli útdauða þeirra og þar með endalokum yfirráða þeirra.
Lesa meira

Nýjustu fréttir frá fréttastofu Þelamerkurskóla

Í dag var verið að leggja lokahönd á vinnu á öllum stöðvum. Nemendur og starfsfólk kláruðu afurðir sínar og undirbjuggu hátíðarhöldin á morgun. Viðtöl og innsýn í vinnu dagsins er að finna í þessari frétt.
Lesa meira

Nonni og Manni í Þelamerkurskóla

Föstudaginn 15. nóvember frá kl. 10.00 - 12.30 munu nemendur Þelamerkurskóla bjóða gestum að skoða afrakstur af þemavinnu um Nonna og Manna. Skólinn opnar kl. 10.00 og kl. 11.30 hefst dagskrá á sviði. Hægt er að kaupa bakkelsi og kaffi á 250 krónur og kjötsúpu í hádeginu á 500 krónur. Allur afrakstur af sölu rennur í ferðasjóði nemenda. Allir velunnarar skólans velkomnir.
Lesa meira

Svipmyndir frá þemavinnu dagsins

Fréttafólk Þelamerkurskóla hefur í nógu að snúast. Auk þess að taka viðtöl við fólk á förnum vegi hefur fréttastofan útbúið myndband með svipmyndum úr vinnu dagsins. Svipmyndir og viðtöl má finna undir þessari frétt.
Lesa meira

Landinn okkar í Þelamerkurskóla

Á góðri fréttastofu eru framleiddir fjölbreyttir mannlílfsþættir. Einn þeirra er Landi Þelamerkurskóla. Í Landanum að þessu sinni var fjallað um þemavikuna sem er í gangi auk þess sem tekin voru viðtöl og vinna nemenda skoðuð. Smellið á fréttina til að sjá þáttinn.
Lesa meira

Upphaf þemaviku um Nonna og Manna - viðtöl við nemendur

Í gær hófst þemavika um Nonna og Manna hjá öllum nemendum í Þelamerkurskóla. Síðustu vikur höfum við horft á þættina um Nonna og Manna og í þessari viku fara nemendur á ýmsar stöðvar í fjölbreytta vinna. Við fórum á milli stöðva, kipptum út nokkrum krökkum og tókum viðtal við þau um þemaverkefnið. Smelltið til að sjá fréttaþáttinn.
Lesa meira

Ævar Þór Benediktsson í heimsókn

Það voru mjög spenntir ungir lestrarhestar sem tóku á móti Ævari í dag þegar hann kom í heimsókn til að lesa upp úr nýjustu bók sinni Þinn eigin tölvuleikur. Ævar náði vart inn á skólalóðina áður en fyrsti aðdáandinn kom hlaupandi með bók til að fá áritun! Nemendur hlustuðu af athygli og áhuga og spurningaflóðinu rigndi yfir höfundinn. Við þökkum okkar kæra Ævari kærlega fyrir komuna og hlökkum til að lesa nýju bókina.
Lesa meira