Þorrablót 1. - 6. bekkjar

 Hið árlega þorrablót 1. - 6. bekkjar var haldið í skólanum í dag. Nemendur borðuðu þorramat og sungu þorrasöngva með undirleik Jóns Þorsteins tónmenntakennara. Eins og hefð er fyrir var skipulag dagsins í höndum 6. bekkjar og umsjónarkennara þeirra.  Skemmtunin tókst mjög vel og allir nutu þess að borða þorramatinn. 

Hér má sjá nokkrar myndir frá skemmtuninni.