Útiskóli

Í Þelamerkurskóla er áralöng hefð fyrir útikennslu.

Útiskóli

Útikennsla er nám sem að mestu leyti fer fram utan hefðbundinnar skólastofu. Aðalmarkmið þessara kennslustunda er að gera nemendur læsa á umhverfi sitt, gefa nemendum tækifæri til að læra að bera virðingu fyrir náttúrunni og auka tengsl þeirra við umhverfið. Einnig að vekja nemendur til umhugsunar um möguleikana sem finnast í nánasta umhverfi þeirra.

Ýmsar myndir frá útiskóla

Myndband frá útiskóla

Útistærðfræði í 3.-4. bekk

Læsi, slökun og hreyfing í Jónasarlaug

Útistærðfræði eldri

Matjurtargarður í vinnslu

Meira af matjurtargarð- sjálfbærni, samvinna, náttúra og læsi

Útivist, hreyfing, örnefni, nærumhverfi, náttúra

Vinnusemi í Mörkinni

Vasaljósaútistöðvabíópoppdagurinn!

Hin daglega míluganga

Fuglaskoðun og sjálfbærni-mataraboð

Vasaljósaganga og skuggar

Íslenska 5.-6. bekk

Útiskóli Þelamerkurskóla skiptist í þrjú þemu og innan hvers þema eru verkefni sem unnið er að yfir veturinn. Þemun eru Hluti af hverri námsgrein, Grenndarkennsla og Hreyfing er líka afþreying. Smelltu á hnappinn hér að neðan til þess að sjá kynningu á útiskólanum.

Kynning á útinámi í Þelamerkurskóla

Í stundaskrá nemenda 1.-4. bekkjar eru útiskóli fastur í stundaskrá einu sinni í viku. Þá fara nemendur ásamt kennurum í útiskóla í tvær kennslustundir. Aðrir námshópar koma útiskólanum fyrir miðað við viðfangsefni hverju sinni.

Eitt af verkefnum útiskólans innan þemans Hreyfing er líka afþreying er Skíðaskólinn fyrir 1.-4. bekk. Í maí 2017 fékk skólinn Foreldraverðlaun Heimilis og skóla fyrir það verkefni. Á vorráðstefnu Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri í maí 2018 var kynning á Skíðaskólanum og fyrir kynninguna var gert stöðumat á honum. Í stuttu máli má segja að Skíðaskólinn hafi náð markmiðum sínum og að nemendur og foreldrar séu vel meðvitaðir um markmið hans og framfarir nemenda.

Glærukynning frá málstofu í HA - 2018