Ævar Þór rithöfundur heimsækir ÞMS

Ævar Þór Benediktsson heimsótti skólann í dag. Hann las upp úr nýrri bók sinni Þitt eigið tímaferðalag við mikla hrifningu áheyrenda.  Ævar kynnti einnig lestrarátk sitt sem verður haldið í fimmta og síðasta sinn strax eftir áramótin. Ævar verður með kynningu á nýju bókinni sinni á Antbókasafninu í dag kl. 16.30.    Á Glerártorgi á morgun klukkan 15.00 og svo kl. 13.00 í Eymundsson á laugardaginn.