Allir hjálpast að

þegar veikindi eru í mötuneytinu og þörf fyrir fleiri hendur þá erum við svo lánsöm að hafa nemendur sem eru tilbúnir til þess að hjálpa til. Egill Már og Bjarki Jarl buðu fram aðstoð sína í gær. Þeir útbjuggu grænmetið sem haft var með hádegismatnum og skömmtuðu síðan á diskana.