Frá umboðsmanni barna

Í samstarfi við KrakkaRÚV vinnur umboðsmaður barna að nýju verkefni undir heitinu „Áhrif kórónuveirunnar á líf barna“. Tilgangur þess er að safna saman frásögnum barna um líðan þeirra og reynslu af þeim breytingum sem kórónufaraldurinn hefur haft á daglegt líf svo sem skólagöngu barna, þátttöku í tómstundum og aðstæður þeirra heima fyrir. Þannig sköpum við mikilvæga samtímaheimild um leiðir barna til að takast á við samfélags áhrif heimsfaraldurs og áður óþekktar aðstæður. Frásagnirnar geta verið af ýmsum toga og á þann máta sem hentar hverjum og einum. Við viljum gjarnan fá myndbönd en einnig er hægt að senda inn ljóð, ritaðar hugleiðingar, hljóðbrot, hlaðvörp, teikningar, viðtöl o.s.frv. Tekið er við efni á netfangið barn@barn.is. Stórar skrár er hægt að senda á sama netfang í gegnum WeTransfer.


Einnig er hægt að nota þetta form til að skila inn skrifuðu efni eða hugleiðingum:

https://forms.gle/pEBTQ22BRf6KEZnZ8

Tekið er á móti efni til og með 10. júní.


Veturinn 2009 – 2010 stóð umboðsmaður barna fyrir sambærilegu verkefni sem bar heitið „Hvernig er að vera barn á Íslandi?“. Þá bárust okkur rúmlega þúsund teikningar og frásagnir barna sem voru að alast upp á tímum efnahagsþrenginga. Við vonumst til að fá jafn góðar undirtektir í þetta sinn og hlökkum til að heyra frá börnunum.