Nemendur og starfsfólk nutu svo sannarlega dagsins í Hlíðarfjalli sl. miðvikudag þegar árlegur útivistardagur fór fram. Veðrið lék við okkur en þegar við mættum var þoka en blankalogn. Þegar leið á daginn fór sólin að skína og veðrið alveg dásamlegt. Nemendur fengu ávexti, grillaðar pylsur, kex og safa á milli þess sem þau brunuðu um brekkurnar. Nemendur sem voru að læra á skíðí í skíðaskólanum vikunni á undan fengu nokkur skíðakennslu á deginum sjálfum og var magnað að fylgjast með framförum þeirra. Það er ekki sjálfgefið að fara úr töfrateppinu í stólalyftuna á einum degi. Margir stórir sigrar og mikil gleði. Takk fyrir daginn og kærar þakkir til foreldra sem komu og aðstoðuðu.
|
Laugalandi | 604 Akureyri Sími á skrifstofu: 460-1770 Netfang: thelamork@thelamork.is Kt: 510101-3830 Skrifstofa skólans er opin: Mán-fim: kl. 07:45 - 16:00 Fös: kl. 07:45-15:00 |
Skólastjóri: 460-1770 Frístund: 460-1771 |