Frétt frá læsisráði

Í Þelamerkurskóla er starfandi læsisráð. Fulltrúar nemenda í ráðinu eru: Arnór, Auður, Pétur, Sunneva, Míó og Efemía. Úr hópi kennara eru Bryndís, Gréta og Halla.
Ráðið hittist reglulega yfir veturinn og vinnur að alls konar skemmtilegum verkefnum tengdu læsi. Markmið með starfinu er að efla læsi og gefa nemendum tækifæri til að koma með hugmyndir að læsistengdum verkefnum og koma þeim í framkvæmd. Á vorönn stóð læsisráð fyrir því að nemendur 1.-6. bekkjar tækju þátt í kosningu á barnabók ársins 2025 en á hverju ári býðst 6-12 ára krökkum að kjósa uppáhalds barnabækur ársins og fer kosningin fram á almennings- og skólabókasöfnum. Úrslit úr kosningu á barnabók ársins verða tilkynnt á hátíðinni ,,Sögur - verðlaunahátíð barnanna" sem fram fer 30. maí í Borgarleikhúsinu en sýnt verður frá hátíðinni í beinni útsendingu á RÚV.

Til að gera þetta enn skemmtilegra ákvað læsisráð að draga út þrjá heppna þátttakendur í kosningu á barnabók ársins  í Þelamerkurskóla og í dag veittu nokkrir nemendur úr læsisráði viðurkenningarnar. Þau sem voru dregin út voru Jónatan Jaki 2. bekk, Víkingur Alex 4. bekk og Brynjar Logi 6. bekk. Þeir fengu bókina Sólmyrkvar eftir Sævar Helga Bragason í verðlaun. Um leið og læsisráð afhenti viðurkenningarnar dreifði ráðið nýju lestrarbingói sem meðlimur læsisráðs hannaði. Nemendur skólans taka lestrarbingóið með sér heim í sumarfrí sem hefst innan skamms og verður það vonandi hvatning til lestrar í sumar! Hér má sjá myndir frá þessum skemmtilega viðburði.