Góð þátttaka í 1. maí hlaupi UFA

Nemendur fjölmenntu í 1. maí hlaupið
Nemendur fjölmenntu í 1. maí hlaupið

Fjölmennur hópur nemenda Þelamerkurskóla tók þátt í 1. maí hlaupi UFA en hefð hefur skapast fyrir því hjá mörgum að taka þátt í þessu hlaupi á ári hverju. Í ár var Þelamerkurskóli með bestu þátttökuna í flokki fjölmennra skóla en 29% nemenda skólans tóku þátt og fengu afhentan bikar.  Á myndinni má sjá nemendahópinn með bikarinn. Vel gert krakkar og til hamingju!

Hér má lesa frétta síðu UFA og sjá myndir frá viðburðinum. https://www.ufa.is/is/frettir/1-mai-hlaup-2026-urslit-og-myndir-