Grænfáni afhentur í fimmta sinn

Umhverfisnefndin við afhendingu á Grænfánanum 10. apríl 2026
Umhverfisnefndin við afhendingu á Grænfánanum 10. apríl 2026

Þelamerkurskóli er Grænfánaskóli en Grænfáninn er alþjóðleg viðurkenning sem staðfestir góðan ásetning og virkni í starfi umhverfisverndar. Unnið er eftir ákveðnu þema á ári hverju og þemað sem Þelamerkurskóli vinnur eftir þessi misserin er neysla og vatn. 

Í gær komu  Sigurlaug Arnardóttir og Borghildur Gunnarsdóttir frá Landvernd og gerðu úttekt á starfi skólans. Þær hittu nokkra fulltrúa úr umhverfisráði skólans, Aniku í 3. b., Ingimar í 4. b., Dag í 7. b og Tönju í  10. b. ásamt Önnu Rós kennara. Þau gengu um skólahúsnæðið með Sigurlaugu og Borghildi og svöruðu spurningum um grænfána verkefni skólans. Í stuttu máli þá stóðst Þelamerkurskóli úttektina og í dag kom Sigurlaug og afhenti nemendum og starfsfólki skólans Grænfánann í fimmta sinn. Við erum stolt af þeirri góðu vinnu sem nemendur og starfsfólk hafa innt af hendi í tengslum við umhverfismál.

Allir bekkir eiga fulltrúa í umhverfisráði og auk ofangreindra eiga þar sæti Tíbrá 1. b., Indíana 2. b., Sóley 5. b., Agnes 6. b. og Aylin 9. b. Úr hópi starfsfólki skólans eru auk Önnu Rósar, Gulla, Begga, Ólöf og Arna. Hér má sjá myndir frá afhendingunni í dag þar sem umhverfisnefnd skólans veitti fánanum viðtöku.