Hvalirnir mæta í skólann og á Húsavík

Mikil gleði ríkti í 3. og 4. bekk þegar spennandi hvalaþema stóð yfir hjá okkur. Nemendur unnu fjölbreytt verkefni í Byrjendalæsi þar sem þau lærðu um risa hafsins og efldu á sama tíma lestur, skrift og skilning á náttúrunni okkar. Lögð var áhersla á vinnu með fræðitexta og var bókin Hvalir í aðalhlutverki. Nemendur rýndu í myndir og texta til að dýpka þekkingu sína og kynntust börnin mörgum tegundum, allt frá hnísum til steypireyða.

Eftirminnileg eru einkum tvö verkefni. Annars vegar þegar við bjuggum til steypireyð í raunstærð í snjónum í útiskóla. Við hjálpuðumst að við að móta útlínur hvalsins og lita þær bláar með lituðu vatni. Hins vegar þegar nemendur bjuggu til hvali í þrívídd úr pappír og tróði og skrifuðu fróðleik um þá. Það var virkilega gaman að sjá hvað nemendur voru áhugasamir og metnaðarfullir þegar þeir leystu verkefnið.

Tengingin við Eyjafjörð var mikilvæg þar sem verkefnið tengdist átthögum sem er þema Grænfánans næstu tvö árin. Við fylgdumst með fréttum af hvölum sem hafa verið í firðinum sem gerði námið raunverulegra og skemmtilegra því þá áttuðu nemendur sig á að þessi stórkostlegu dýr eru bókstaflega að synda hérna rétt fyrir utan túnfótinn hjá okkur. Til að gera verkefnið ennþá meira lifandi vorum við svo heppin að fá Garðar til að kenna okkur að flaka fisk sem við síðan elduðum úti í Mörk og fengum smakk af. Fiskinn fékk hann hjá Jonna húsverði sem veiddi hann við Hjalteyri. Þetta var stærðar þorskur.

Á sama tíma og þemað stóð yfir fagnaði David Attenborough hundrað ára afmæli sínu. Við nýttum tækifærið og skoðuðum magnað efni frá honum sem hvetur okkur enn frekar til að bera virðingu fyrir lífríki hafsins.

Hápunktur þessa þema verður svo án efa ferð á Hvalasafnið á Húsavík í vorferðinni okkar í næstu viku. Þar fá nemendur að sjá með eigin augum beinagrindur og upplifa hvalina á nýjan hátt. Það er dýrmætt að geta endað svona skemmtilegt verkefni á ferðalagi sem þessu þar sem fræðin úr skólastofunni mæta raunveruleikanum í okkar fallegu átthögum og hlökkum við mikið til ferðarinnar. Myndir frá þemavinnu