Leiksýning á Álfasteini

Nemendur í 1. og 2. bekk heimsóttu Leikskólann Álfastein í dag og horfðu á leiksýninguna Íslenski fíllinn. Söguþráður leikritsins er í stuttu máli þessi: Miklir þurrkar geisa í Afríku – lítill, munaðarlaus fílsungi vill ekki farast. Hann hittir kríu sem hvíslar í eyra hans ævintýralegri sögu af eyju í norðri, þar sem finna megi óþrjótandi vatn í öllum mögulegum myndum. Fílsunginn ákveður að leggja upp í langt og erfitt ferðalag til að finna þennan ótrúlega stað.