Lesið úti í góða veðrinu

Lesum saman er ein af hefðunum okkar í skólanum en einu sinni í mánuði dreifum við okkur um skólann og lesum í bókunum okkar í 20 mínútur. Á miðvikudaginn var einmitt slík sameiginleg lestrarstund og þar sem  góða veðrið lék við okkur þá kusu mörg að fara út að lesa í góða veðrinu. Hér má sjá myndir frá stundinni.