Lokahátíð upplestrarkeppninnar

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar var haldin í Ólafsfirði þriðjudaginn 28. apríl. Dagur Snær Agnarsson og Rakel Eva Vilhjálmsdóttir kepptu fyrir hönd okkar í Þelamerkurskóla og stóðu sig ljómandi vel, svo vel að Rakel hreppti 3ja sætið. Í ár kepptu nemendur frá fimm skólum: Dalvíkurskóla, Grenivíkurskóla, Grunnskóla Fjallabyggðar, Hrafnagilsskóla og Þelamerkurskóla og voru tveir keppendur úr hverjum skóla. Sigurvegari keppninnar í ár var úr Dalvíkurskóla. 

Keppnin var vel sótt af nemendum, kennurum og aðstandendum, flottur hópur nemenda 6.-8. bekkjar fylgdi keppendunum okkar og hvatti keppendur til dáða. Nemendur lásu í þremur umferðum, kafla úr bókinni Silfurberg og tvö ljóð. Hérna má sjá myndir frá keppninni.